Málþing um aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum heimi

Laugardaginn 29. október fer fram málþing Þroskahjálpar, Framtíð sem skilur engan eftir: aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum heimi.

Málþingið verður á Hilton Nordica í Reykjavík kl. 13.30-16.30.

Gestir þurfa að skrá sig á málþingið hér. 
Streymi verður á málþinginu á vef Þroskahjálpar og á Facebook. 
Gott aðgengi er á Hilton Nordica.
Táknmálstúlkun á staðnum og í streymi.

Dagskrá

13:30 Erindi félags- og vinnumarkaðsráðherra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson

13:45 Ný veröld: hindranir og áskoranir fatlaðs fólks í stafrænum heimi
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, Landssamtökin Þroskahjálp

14:00 Máltækni til sjálfbjargar – möguleikar og áskoranir
Katla Ásgeirsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri Miðeindar og Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir, sérfræðingur í máltækni hjá Miðeind. 

14:20 Ertu ekki að grínast? – Reynsla notanda
Ólafur Elías Harðarson og Ágústa Rósa Andrésdóttir

14:30 HLÉ

15:00 Persónulegir talsmenn og rafræn skilríki
Jón Þorsteinn Sigurðsson, yfirmaður réttindagæslu fatlaðs fólks

15:30 Lausnir að bættu aðgengi
Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, Tækni og þróunarstjóri Stafræns Íslands

15:50 UMRÆÐUR