Frestur til að sækja um sanngirnisbætur rennur út 31. janúar

Auðlesið mál

  • Fatlað fólk sem var á stofnunum sem börn og sættu illri meðferð eða ofbeldi eiga rétt á að fá sanngirnis-bætur.
  • Sanngirnis-bætur eru peningar sem fólk fær borgað frá ríkinu því það var komið illa fram við þau eða brotið á þeim.
  • Fólk sem var á stofnunum þegar þau voru börn, fyrir 1. febrúar árið 1993 á rétt á þessum peningagreiðslum.
  • Fólk sem var á Kópavogshæli eru búin að fá bætur en Þroskahjálp barðist fyrir að allir sem voru á stofnunum sem börn fengju líka greiðslu.
  • Það er hægt að sækja um til 31. janúar árið 2022.
  • Hvernig sæki ég um sanngirnisbætur? 

    • Þú getur sótt um sanngirnis-bætur inni á: https://island.is/sanngirnisbaetur

    • Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir, er starfsmaður hjá Sýslumanni sem sér um þessar greiðslur.

    • Skrifstofa Sýslumannsins er í Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi.

    • Þú getur haft samband við Ingibjörgu Gyðu á netfanginu tengilidur@tengilidur.is til að fá frekari upplýsingar.

    • Það er líka hægt að skila umsókn á blaði með því að skila því Ingibjargar Gyðu eða til Sýslumannsins á Norðurlandi eystra, Gránugötu 4-6, 580 Siglufirði.

      • Eyðublað fyrir umsókn um sanngirnisbætur má finna hér
      • Leiðbeiningar fyrir umsókn má finna hér
      • Eyðblað til að óska eftir því að fá umboðsmann til að sjá um umsókn má finna hér

Ákveðið var í lok árs 2021 að greiða sanngirnisbætur fyrir fatlað fólk sem varð fyrir varanlegum skaða á stofnunum fyrir fötluð börn á vegum hins opinbera, og sættu illri meðferð eða ofbeldi, fyrir 1. febrúar 1993. Frestur til að sækja um sanngirnisbæturnar rennur út 31. janúar 2022.

Þetta á við um fólk sem var vistað á sambærilegum stofnunum og Kópavogshæli. Fólk sem vistað var á Kópavogshæli hefur þegar fengið bætur en Þroskahjálp hefur barist fyrir því að þetta eigi við um alla sem voru á stofnunum sem börn.

Hægt að sækja um sanngirnisbætur inni á: https://island.is/sanngirnisbaetur

Tengiliður verkefnisins er Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir, sem er með aðstöðu hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi. Hægt er að hafa samband við Ingibjörgu Gyðu á tengilidur@tengilidur.is til að fá frekari upplýsingar. Hægt er að skila umsóknum til Ingibjargar Gyðu eða til Sýslumannsins á Norðurlandi eystra, Gránugötu 4-6, 580 Siglufirði.

  • Eyðublað fyrir umsókn um sanngirnisbætur má finna hér
  • Leiðbeiningar fyrir umsókn má finna hér 
  • Eyðblað til að óska eftir því að fá umboðsmann til að sjá um umsókn má finna hér

 

Landssamtökin Þroskahjálp hafa síðastliðin 12 ár barist fyrir því að aðstæður fatlaðra barna sem vistuð voru á stofnunum verði rannsakaðar og þeim greiddar sanngirnisbætur til jafns við aðra sem fengið hafa bætur af því tagi. Samtökin hafa margítrekað þær sanngirniskröfur og of lengi og of oft talað fyrir daufum eyrum. Barátta samtakanna í gegnum árin hefur þó smám saman orðið til þess að hreyfing hefur komst á þessi miklu réttlætismál og er nú komin til framkvæmda. Við fögnum því og hvetjum fólk til að kanna rétt sinn til sanngirnisbóta.

Árið 2008 óskuðu Landssamtökin Þroskahjálp eftir því að opinber rannsókn yrði gerð á aðbúnaði fatlaðra barna sem vistuð voru á stofnunum og var beiðnin ítrekuð margoft. Árið 2012 brást forsætisráðherra loks við erindinu og endurskipaði þá vistheimilanefnd til þess að taka til sérstakrar rannsóknar vistun og aðbúnað barna með fötlun á opinberum stofnunum. Fékk nefndin það hlutverk að kanna fyrst aðbúnað barna sem vistuð voru á Kópavogshæli.

 

Fréttir og umfjallanir um málið: