Fötluð börn taka þátt á Barnaþingi

Mynd frá barnaþingi árið 2019. Mynd: Umboðsmaður barna
Mynd frá barnaþingi árið 2019. Mynd: Umboðsmaður barna

Barnaþing Umboðsmanns barna verður haldið 3. -4. mars 2022 í Hörpu. Fötluð ungmenni fá þar stuðning til þátttöku á vegum Þroskahjálpar og taka virkan þátt í samtali ungu kynslóðarinnar! Þroskahjálp studdi fötluð ungmenna einnig til þátttöku á síðasta þingi árið 2019 og þá kom berlega í ljós hversu miklu máli það skiptir að fötluð börn eigi rödd á þessum mikilvæga vettvangi.

Við hlökkum til að fylgjast með þessu kraftmikla þingi og afrakstri þess!