Fleiri hjálpartæki í boði fyrir fötluð börn með tvö heimili

Mynd: Pexel
Mynd: Pexel

Nú hafa Sjúkratryggingum Íslands verið veittar auknar heimildir til styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum fyrir fötluð börn með tvö heimili.  Þroskahjálp fagna þessum skrefum, en samtökin hafa lengi bent á misréttið sem í þessu felst.

Á vef Stjórnarráðsins segir að markmiðið sé að gera heimilin jafnsett þannig að börnin eigi hjálpartækin vís á báðum stöðum. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin.

Áður tóku styrkirnir til kaupa á sjúkrarúmum, dýnum, stuðningsbúnaði og hjálpartækjum tengdum salernisferðum. Nú er einnig heimilt að veita styrki til kaupa á sérstökum vinnustólum og sessum. Þann 1. júlí sl. hækkuðu fjárhæðir styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum umtalsvert þegar styrkirnir voru færðir upp til verðlags en það hafði ekki verið gert frá árinu 2008.