Desemberuppbót til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna

Tryggingastofnun ríkisins greiðir út desemberuppbótina til foreldra langveikra og fatlaðra barna.
Tryggingastofnun ríkisins greiðir út desemberuppbótina til foreldra langveikra og fatlaðra barna.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um að foreldrar barna sem eru langveik eða alvarlega fötluð fái greidda desemberuppbót. Óskert desemberuppbót er 64.066 krónur. 

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Í reglugerðinni segir að foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns sem hefur fengið greiðslur í desember 2021, samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, eigi rétt á desemberuppbót.

Foreldri sem fengið hefur mánaðarlega greiðslu samkvæmt lögunum alla tólf mánuði ársins fær fulla desemberuppbót.

Foreldri sem fengið hefur greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2021 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót í samræmi við þann tíma sem það hefur fengið greiðslur.

Desemberuppbótin nemur þó aldrei lægri fjárhæð en 16.016 krónum.

Tryggingastofnun annast greiðslu desemberuppbótar samkvæmt reglugerðinni.