Dansnámskeið fyrir fatlað fólk

Dansfélagið Hvönn hefur um árabil boðið upp á danskennslu fyrir fatlað fólk.

Upphaflega var eingöngu í boði kennsla fyrir 20 ára og eldri í samstarfi við Fjölmennt en nú er boðið upp á svokallaða stjörnuflokka bæði fyrir börn og fullorðna. Kennsla er sniðin að fötlun hvers og eins, tillit tekið til hreyfigetu, áhuga og markmiða hvers og eins.

Hvönn hefur auk þess hug á að bæta við kennslu í hjólastóladansi í náinni framtíð en húsnæði Hvannar er aðgengilegt öllum, salurinn er á jarðhæð, engar tröppur eða hindranir, sjáflvirk opnun á útidyrahurð, búningsklefar og salerni fyrir fatlaða.

Upplýsingar og skráning á www.hvonn.is