Til baka
Að aðstoða seinfæra foreldra (2021)
Að aðstoða seinfæra foreldra (2021)

Að aðstoða seinfæra foreldra (2021)

Eiginleikar:
Vörunúmer
Verð með VSK
1.500 kr.
Prentuð bók - 1.500 kr. per Bók
Rafbók - 1.500 kr. per Bók

Vörulýsing

Að aðstoða seinfæra foreldra, 2021, eftir Sigríði Elínu Leifsdóttur og Maríu Hreiðarsdóttur er gefið út af Landssamtökunum Þroskahjálp til að styðja við fagfólk sem starfar með seinfærum foreldrum. Hægt er að kaupa prentaða útgáfu eða rafbók (PDF).

Landssamtökin Þroskahjálp hafa gefið út rit til þess að styðja við og leiðbeina þeim sem vinna með seinfærum foreldrum. Ritið er skrifað af þeim Sigríði Elínu Leifsdóttur, þroskaþjálfa og Maríu Hreiðarsdóttur, seinfærri móður og rithöfundi. Í því er einnig að finna kafla með ráðum og óskum frá hópi seinfærra foreldra sem voru til stuðnings og yfirlestrar.

Í 23. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er fjallað um virðingu fyrir heimilis- og fjölskyldulífi. Þar er m.a. fjallað um rétt fatlaðs fólks til að stofna fjölskyldu og fá fræðslu og stuðning vegna fjölskyldumála og barna-uppeldis þar sem áhersla er á að fatlað fólki eigi sama rétt og aðrir til að halda frjósemi sinni, giftast, stofna fjölskyldu og eiga börn. Þessi stuðningur er bundinn í lög.