Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (afnám skerðingar lífeyris vegna miskabóta), 84. mál.

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar

Greiðsla miskabóta  til einstaklinga er, að mati samtakanna, ósambærileg við tekjur sem þeir fá að því leyti að með þeim bótum er verið að bæta áfall eða órétt af einhverjum toga sem hlutaðeigandi einstaklingar hafa orðið fyrir. Það stenst því hvorki m.t.t. sanngirni né málefnalegra raka að slíkar greiðslur skerði lífeyri almannatrygginga til þeirra sem í hlut eiga eins og er samkvæmt gildandi reglum.

Samtökin mæla því eindregið með að frumvarpið verði samþykkt.

 

Virðingarfyllst.

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Nálgast má frumvarp sem umsögn á við hér