Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (fjárhæðir fylgi launavísitölu)

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (fjárhæðir fylgi launavísitölu), 65. mál.             

                                                                                                                        12. desember 2022

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar.

Landssamtökin Þroskahjálp taka undir að hér eru mjög mikilvægt mál að ræða og lýsa stuðningi við frumvarpið.

Samtökin taka einnig undir álit umboðsmanns Alþingis um mikilvægi þess að ákvæði í lögum um almannatryggingar, er varðar viðmið um launaþróun, verði skýrt. Samtökin leggja áherslu á að það verði gert þannig að það tryggi bótaþegum örugglega þann rétt sem augljóslega verður að ætla að markmið þess sé.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Nálgast má frumvarpið sem umsögnin á við hér.