Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um heimildir einkaaðila til að birta gögn í stafrænu pósthólfi.

 

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar[1] um drög að reglugerð um heimildir einkaaðila til að birta gögn í stafrænu pósthólfi.

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 árið skuldabatt sig þar með til að virða og framfylgja ákvæðum samningsins. Stjórnvöldum ber að tryggja að lög, reglur og framkvæmd þeirra sé í fullu samræmi við skyldur samningsins

Í 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks sem hefur yfirskriftina „Almennar skuldbindingar“ segir m.a.:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Í samningnum eru ýmis ákvæði sem hafa þýðingu hvað varðar nýtingu stafrænnar tækni í samskiptum við borgarana og þjónustu við þá. Afar mikilvægt er að þess sé gætt við stefnumótun, setningu laga og reglna og framkvæmd hvað varðar þróun og nýtingu stafrænnar tækni að fatlað fólk og fatlað fólk með tilteknar skerðingar njóti góðs af þessari tækni og ekki verið aukið þá jaðarsetningu sem hópurinn býr þegar við. Hætta er á að slíkt leiði af sér minni tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu og auki aðgreiningar en meginmarkmið samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks er að tryggja þátttöku, sjálfstæði og virkni. Í þessu sambandi er einnig rétt að minna á að meginþáttur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, sem íslensk stjórnvöld leggja mikla áherslu á, er orðaður svo: „Enginn skilinn eftir“.

Meðal ákvæða samningsins sem þarf sérstaklega að líta til í þessu sambandi eru ákvæði 9. gr. sem hefur yfirskriftina „aðgengi“. Þar segir m.a.:

Til að gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi og taka fullan þátt á öllum sviðum lífsins skulu aðildarríkin gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja fötluðu fólki aðgengi, til jafns við aðra, að efnislegu umhverfi sínu, samgöngum, upplýsingum og samskiptum, þ.m.t. samskiptatækni og -kerfi og að annarri aðstöðu og þjónustu sem opin er eða veitt almenningi hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli. Ráðstafanir þessar, sem skulu fela í sér að bera kennsl á og útrýma hindrunum og tálmunum aðgengis, skulu meðal annars ná til: [...] „standa fyrir fræðslu fyrir hagsmunaaðila um þau aðgengis vandamál sem fatlað fólk stendur frammi fyrir, […] efla önnur viðeigandi form aðstoðar og stuðnings við fatlað fólk í því skyni að tryggja aðgang þess að upplýsingum, […] efla aðgengi fatlaðs fólks að nýrri upplýsinga- og samskiptatækni og -kerfum, þar á meðal netinu, […] við hönnun, þróun, framleiðslu og dreifingu aðgengilegrar upplýsinga- og samskiptatækni og kerfa þar að lútandi sé frá upphafi unnið að því að slík tækni og kerfi verði aðgengileg með sem minnstum tilkostnaði.” (Undirstr. Þroskahj.)

Þá hafa ákvæði 12. gr. samningsins mikla þýðingu í þessu sambandi. Greinin hefur yfirskriftina „Jöfn viðurkenning fyrir lögum“ og þar kveðið er á um skyldur stjórnvalda til að virða og verja löghæfi (rétthæfi og gerhæfi) fatlaðs fólks og tryggja að það fá viðeigandi og fullnægjandi aðstoð til að nýta gerhæfi sitt. Í greininni segir m.a.:

1. Aðildarríkin árétta að fatlað fólk á rétt á því að vera viðurkennt alls staðar sem persónur að lögum. 
2. Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti löghæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins.
3. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái þann stuðning sem það kann að þarfnast þegar það nýtir löghæfi sitt.

Eins og fram kom í umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp um stafrænt pósthólf, fagna samtökin því að einfalda eigi stafræna þjónustu við almenning. Það er hægðarauki fyrir marga, m.a. fatlað fólk, að nálgast megi öll skjöl á sama stað, enda getur verið flókið að halda utan um samskipti sín við hinar ýmsu stofnanir og að læra á ólíkar „Mínar síður“.

Landssamtökin Þroskahjálp fá reglulega til sín aðila sem gæta hagsmuna fatlaðs fólks, t.d. aðstandendur, persónulega talsmenn og aðra sem vinna fyrir fatlað fólk, sem mæta miklum hindrunum þegar kemur að því að aðstoða fólk við nýtingu stafrænna lausna. Einstaklingar sem ekki geta skrifað nafn sitt, tjáð sig með hefðbundnu máli eða notað PIN-númer geta t.a.m. ekki fengið rafræn skilríki. Mikil þörf er á endurskoðun laga til að þeir sem hafa lagalegt hlutverk sem hagsmunagæsluaðilar fái rétt til þess að aðstoða sína umbjóðendur. Mikilvægt er að réttindagæslulögin verði endurskoðuð samhliða þessu svo nýting rafrænna skilríkja verði auðveldari fyrir fatlað fólk og aðstandendur þess.

Samtökin óttast að einstaklingar sem ekki hafa nægilega tölvufærni fari á mis við mikilvægar upplýsingar. Því er mikilvægt að stjórnvöld kynni vel þær breytingar sem þessi reglugerð leiðir af sér fyrir almenning, sér í lagi fötluðu fólki og á auðlesnu máli. Þá er nauðsynlegt að kynna að hægt verði að óska eftir bréfpósti áfram. Skyldur til slíkrar upplýsingagjafar eru áréttaðar í 21. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks Dæmi eru um að fatlað fólk komist ekki inn í netbanka vegna þess að það hefur ekki aðgang að rafrænum skilríkjum, og sjái af þeim sökum ekki reikninga og kröfur sem í heimabankann berast. Það leiðir af sér að einstaklingarnir og aðstandendur/aðstoðarfólk veit ekki af reikningunum fyrr en þeir eru komnir í innheimtu hjá lögfræðingum og innheimtustofnunum með tilheyrandi kostnaði og mikilli vinnu sem fer í að leiðrétta þær. Hafi innheimtustofnanir leyfi til þess að senda bréf sín í stafrænt pósthólf, skapast enn meiri hætta á að fatlað fólk verði af upplýsingum frá þessum aðilum sem er algjörlega óásættanlegt, veldur fjárhagstapi og óafturkræfum skaða á lánshæfismati og orðspori.

Á sama tíma og það er mikilvægt að tryggja að fatlað fólk geti veitt þeim sem hafa lagalega stöðu sem hagsmunagæsluaðilar umboð til að skrá sinn inn á stafrænt pósthólf, er mikilvægt að minna á rétt fatlaðs fólks til friðhelgis og virðingu fyrir einkalífi þess.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála

 

Nálgast má málið sem umsögnin á við hér.

 

 



[1] Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð árið 1976. Samtökin vinna, í samstarfi við aðildarfélögin, að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála SÞ og heimsmarkmiðum SÞ.