Styrkur til mótunar náms- og atvinnutækifæra fyrir ungt fatlað fólk

Unnur Helga Óttarsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir, starfsmenn Þroskahjálpar og Guðmundur Ingi G…
Unnur Helga Óttarsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir, starfsmenn Þroskahjálpar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Þroskahjálp hefur hlotið 3 milljón kr. styrk frá Guðmundi Inga, félags- og vinnumarkaðsráðherra, vegna verkefnisins Ungt fólk og framtíðin.

Landssamtökin Þroskahjálp hafa undanfarið ár, undir forystu Söru Daggar Svanhildardóttur, unnið að verkefni sem snýr að því að kortleggja náms- og atvinnutækifæri fyrir ungt fólk með þroskahömlun og skyldar raskanir að loknum framhaldsskóla. Verkefnið er unnið með styrk frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og menntamálaráðuneytinu og var ein af tillögum verkefnishóps á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem fjallaði um úrbætur í menntun, atvinnu og tómstundum fyrir nemendur sem lokið hafa námi á starfsbrautum framhaldsskóla.

Í ljós kom að rík þörf er á stórátaki til þess að  auka þau tækifæri sem ungu fötluðu fólk bjóðast. Þetta er sérstakt áhyggjuefni í ljósi þeirra breytinga sem eru að verða á vinnumarkaði vegna stafrænnar framþróunar og fjórðu iðnbyltingarinnar, og mikilvægt að stjórnvöld uppfylli skyldur sínar sem kveðið er á um í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þessi viðbótarstyrkur til Þroskahjálpar verður tól til þess að efla verkefnið.

Næsta skref mun fela í sér aukið samstarf við ungmennaráð Þroskahjálpar, þar sem Sunna Dögg, er verkefnisstjóri. Munu Sunna og Sara vinna að því að kalla fram áherslur og sýn ungs fólks á eigin framtíð, og móta tillögur úr þeirri vinnu. Þá verður opinn dagur um námstækifæri fatlaðs fólks í samstarfi við Fjölmennt. Í lok verkefnis verða niðurstöður samráðs settar fram í skýrslu og kynntar opinberlega.

Ungmennaráð Þroskahjálpar styrkir starf samtakanna í ýmsum mikilvægum málum sem varða réttindi og hagsmuni ungs fólks. Ráðið er vettvangur þar sem ungt fólk með þroskahömlun og/eða einhverfu fær betri tækifæri til að vera virkir þátttakendur í umræðu og stefnumótun sem varðar réttindi þess og mikilvæg hagsmunamál.