Landssamtökin Þroskahjálp

AUÐLESIÐ

  • Landssamtökin Þroskahjálp eru félaga-samtök.
  • Félaga-samtök berjast fyrir ákveðnu málefni.
  • Málefnin geta til dæmis verið að berjast fyrir börn, fyrir náttúruna, fyrir hinsegin fólk og annað.
  • Þroskahjálp berst fyrir fatlað fólk.
  • Þroskahjálp vill að fatlað fólk njóti mannréttinda eins og annað fólk.
  • Þroskahjálp vill að fatlað fólk geti farið í skóla, fengið vinnu, stofnað fjölskyldu og svo framvegis.
  • Þroskahjálp vill að fatlað fólk fái virðingu eins og annað fólk.
  • Þroskahjálp hefur samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi.
  • Þroskahjálp leggur áherslu á að berjast fyrir fólk með þroskahömlun.
  • Þroskahjálp leggur áherslu á að berjast fyrir einhverft fólk.
  • Þroskahjálp leggur áherslu á að berjast fyrir fötluð börn og unglinga.
  • Þroskahjálp leggur áherslu á að berjast fyrir fatlað fólk sem hefur flutt til Íslands frá útlöndum.

  • Þroskahjálp eru regnhlífar-samtök.
  • Þroskahjálp er þá eins og regnhlíf og það eru mörg félög undir regnhlífinni.
  • Félög sem eru undir regnhlífinni hjá Þroskahjálp eru til dæmis:
    Átak – félag fólks með þroskahömlun, Downs-félagið, Þroskaþjálfa-félag Íslands og Einhverfu-samtökin.
  • Neðst á þessari síðu getur þú skoðað öll félögin sem eru undir regnhlíf Þroskahjálpar.
  • Þessi félög ráða sér alveg sjálf. Þau eru sjálfstæð. 
  • Félögin vinna með Þroskahjálp.

 

Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið árið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með það að markmiði að tryggja því fullt jafnrétti á við aðra.

Aðildarfélög Þroskahjálpar eru 22 talsins og eru þau foreldra- og styrktarfélög, svo og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlað fólk. Félögin eru starfrækt um allt land og eru félagsmenn þeirra u.þ.b. sex þúsund.


Baráttan fyrir réttindum, hagsmunum og tækifærum fatlaðs fólks

Landssamtökin Þroskahjálp hafa allt frá stofnun samtakanna lagt höfuðáherslu á að málefni fatlaðs fólks séu málefni samfélagsins alls og að unnið skuli að þeim í samráði við þá sem sérstakra hagsmuna eiga að gæta.

Samtökin eiga því mikið og margvíslegt samstarf við hlutaðeigandi stjórnvöld ríkis og sveitarfélaga varðandi ýmis réttinda- og hagsmunamál fatlaðs fólks og berjast fyrir rétti þess. Þannig er leitast við að hafa mótandi áhrif á allar aðgerðir, sem stjórnvöld hafa forystu um, með það að leiðarljósi að fatlað fólk njóti í hvívetna sama réttar og sömu aðstöðu og aðrir landsmenn.

Árangur þessarar baráttu og þessa starfs er ótvíræður og má í því sambandi nefna löggjöf um aðstoð við þroskahefta 1979 og heildarlöggjöf um málefni fatlaðra sem tók gildi 1. janúar 1984. Ennfremur endurskoðun þeirra laga sem öðluðust gildi 1. september 1992 og nú síðast samþykkt laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Íslenskt samfélag á enn talsvert í land með að tryggja fötluðu fólki viðunandi þjónustu og stuðning og jafnrétti í raun, eins og skylt er að gera samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland fullgilti árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að virða og framfylgja á öllum sviðum samfélagsins.

Landssamtökin Þroskahjálp eiga m.a. aðild að Inclusion International, Inclusion Europe og Almannaheill

 

Aðildarfélög

Ás styrktarfélag

Átak - félag fólks með þroskahömlun
Downs-félagið

Félag Þroskahjálpar í Skagafirði 
og Húnavatnssýslum

Formaður: Guðmundur H. Kristjánsson,
s. 894-6776

Foreldrafélag Klettaskóla

Foreldra- og styrktarfélag
blindra og sjónskertra

Formaður: Elín Rún Þorsteinsdóttir,
s. 899 1188 (erh@centrum.is)

 

 

Foreldra og styrktarfélag 
Greiningarstöðvar

Foreldrasamtök fatlaðra 

Formaður: Helga Hjörleifsdóttir,
s. 868-7024

Foreldra- og styrktarfélag
Tónstofu Valgerðar

Formaður: Rut Ríkey Tryggvadóttir
 

Styrktarfélag fatlaðra á Vestfjörðum 

Formaður: Þuríður Sigurðardóttir,
s. 847-2705 (thuridursig@gmail.com)


Einhverfusamtökin

 

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 

 

Vinir Skaftholts

Formaður: Axel Árnason, s. 486-6057

Vinafélag Skálatúns 

Formaður: Ólafur Sæmundsson,
s. 567-5596, 822-5353 

Þroskahjálp á Austurlandi 

Formaður: Árdís G. Aðalsteinsdóttir
(ardis1@simnet.is)

Þroskahjálp á Norðurlandi eystra 

Formaður: Sif Sigurðardóttir,
s. 896-3256
(throska.ne@gmail.com / sifmoli@simnet.is)

Þroskahjálp á Suðurlandi 

Formaður: Bjarni Harðarson,
s. 482-3176 og 897-3374
(bjarnihardar@gmail.com)

Þroskahjálp á Suðurnesjum 

Formaður: Ásmundur Friðriksson,
s. 481-1077 og 894-3900
(asmundurf@althingi.is)

Þroskahjálp á Vesturlandi 

Formaður: Kristján J. Pétursson,
s. 861-3973
(throskahjalp.vesturlandi@gmail.com)

Þroskahjálp í Vestmannaeyjum 

Formaður: Jóhanna Birgisdóttir,
s. 894-2064
(johannabirgis@gmail.com)

Þroskaþjálfafélag Íslands