Daðahús - sumar

Daðahús, auglýsing fyrir sumarúthlutun 2023

 

Daðahús á Flúðum er orlofshús Þroskahjálpar.

Umsóknareyðublað fyrir sumarúthlutun í Daðahúsi er neðst á þessari síðu.
Umsóknir þurfa að berast ekki seinna en 10. apríl.

Fyrir vetrarbókanir, vinsamlegast sendið tölvupóst á dadahus@throskahjalp.is eða hringið í 588 9390

Verð og tímabil

Sumartímabilið er frá 8. maí til 2. október

Á sumrin er Daðahús leigt í viku í senn, frá föstudegi til föstudags.
Komutími: kl. 15.00 á föstudegi
Brottför: kl. 12.00 á föstudegi

Yfir sumarmánuðina er húsið eingöngu ætlað fötluðu fólki og aðstandendum þeirra.

Verð fyrir viku: 60.000 kr.

Aðgengi og aðbúnaður

Daðahús er einbýlishús sem stendur við Akurgerði 10, Flúðum.
Húsið er útbúið sérstaklega fyrir fatlað fólk.
Hleðslustöð er fyrir rafbíla, internet og Apple TV.

Aðgengi og aðbúnaður er til fyrirmyndar.

Í húsinu eru 5 herbergi:
— 4 svefnherbergi
— baðherbergi, vel útbúið fyrir fatlað fólk
— gestasalerni með sturtu

Svefnpláss fyrir 7 til 10 manns:
— 6 rúm
— 1 sjúkrarúm
— lausar dýnur

Að auki:
— Lyftari
— Heitur pottur, með aðgengi fyrir lyftara
— Sturtustóll
— Sturtubekkur

 

Myndir af Daðahúsi

Smelltu hér til að sjá myndir af Daðahúsi

Afþreying á Flúðum

Á Flúðum er fjölbreytt aðstaða fyrir útivist, verslun, og á staðnum er sundlaug.

Smelltu hér til að skoða vefsíðu svæðisins

 

Umsókn um sumarúthlutun

 

Upplýsingar um þig

 

Veldu komudag og brottför

Á sumrin er Daðahús leigt í viku í senn, frá föstudegi til föstudags.
Komutími: kl. 15.00 á föstudegi
Brottför: kl. 12.00 á föstudegi