Um Landssamtökin Þroskahjálp
Landssamtökin Þroskahjálp eru mannréttindasamtök sem eiga 50 ára sögu.
Samtökin urðu til árið 1976 við sameiningu félaga sem vinna að réttinda- og hagsmunamálum fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir.
Markmið samtakanna er og hefur ávallt verið að tryggja fötluðu fólki fullt jafnrétti á við aðra.
Baráttan er alltaf fyrir réttindum, hagsmunum og tækifærum fatlaðs fólks

Við veitum upplýsingar og ráðgjöf um réttindi og þjónustu
Skrifstofa Þroskahjálpar sinnir ýmsum erindum og veitir fötluðu fólki og aðstandendum þess leiðbeiningar og ráðgjöf.
Hjá Þroskahjálp starfa verkefnastjórar sem hafa aflað sér sérþekkingu á málefnum og réttindum fatlaðs fólks.
Við rekum gistiheimili og orlofshús fyrir fatlað fólk
Þroskahjálp býður fötluðum börnum af landsbyggðinni og aðstandendum þeirra að nýta sér íbúð á vegum samtakanna þegar sækja þarf þjónustu á höfuðborgarsvæðið vegna fötlunar þeirra.
Samtökin eiga einnig orlofshús að Flúðum sem er sérstaklega útbúið fyrir fatlað fólk.


Við erum til samtals við allt fólk
Þroskahjálp er málsvari fatlaðs fólks í margvíslegum ráðum og nefndum á vegum hins opinbera. Við tökum þátt í samráðshópum og veitum umsagnir um mál þar sem þeirra er þörf.
Við eigum í góðu samtali við fyrirtæki og stofnanir, t.a.m. um atvinnuþátttöku og inngildingu fatlaðs fólks á vinnumarkaði.
[ATH. uppfæra] Við leigjum fötluðu fólki íbúðir á viðráðanlegu verði
Fatlað fólk á rétt á húsnæði við hæfi og að ráða hvar það býr og með hverjum.
Þess vegna rekur Þroskahjálp húsbyggingasjóð til að fjölga íbúðum fyrir fatlað fólk.


Við sinnum fjölbreyttum verkefnum
Öll málefni samfélagsins eru málefni fatlaðs fólks.
Þess vegna eru verkefnin okkar eins fjölbreytt og lífið sjálft.
Við byggjum m.a. heimili, vinnum með ráðuneytum, búum til tækniverkefni, veitum ráðgjöf og leiðbeiningar, kennum í háskólum.
Öll málefni skipta fatlað fólk máli.
Stór og mikilvægur þáttur í starfsemi Þroskahjálpar er því að bregðast við misrétti og hindrunum sem fatlað fólk verður fyrir.

Saga Landssamtakanna Þroskahjálpar frá 1976 til 2015

Það er ótvíræður árangur af baráttu og starfi Þroskahjálpar
[ATH óljósar tilvísanir í löggjöf sem notandi síðu skilur ekki endilega]
Má í því sambandi nefna löggjöf um aðstoð frá 1979 og heildarlöggjöf um málefni fatlaðra sem tók gildi 1. janúar 1984.
Ennfremur endurskoðun þeirra laga sem öðluðust gildi 1. september 1992 og nú síðast samþykkt laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Bæta við: SRFF: fullgilding og lögfesting
Íslenskt samfélag á enn talsvert í land með að tryggja fötluðu fólki viðunandi þjónustu og stuðning
Eins þarf að tryggja jafnrétti í raun, eins og skylt er að gera samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ísland fullgilti samninginn árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að virða og framfylgja á öllum sviðum samfélagsins.
Fjölþjóðlegt samstarf: Landssamtökin Þroskahjálp eiga m.a. aðild að: Inclusion International, Inclusion Europe, EASPD og Nordic Inclusion
Íslenskt samfélag á enn talsvert í land með að tryggja fötluðu fólki viðunandi þjónustu og stuðning og jafnrétti í raun, eins og skylt er að gera samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Ísland fullgilti samninginn árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að virða og framfylgja samningnum á öllum sviðum samfélagsins.

Ef Þroskahjálp væri fugl …
… þá er annar vængurinn sá hluti starfseminnar sem vinnur með ráðuneytum, ríki og sveitarfélögum, og hinum ýmsu stofnunum, til að tryggja réttindi og aðgengi fatlaðs fólks að samfélaginu.
Með samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem leiðarljós, sitjum við í samráðshópum, krefjumst breytinga, veitum stjórnvöldum aðhald og áminningu um lögvarinn, lögbundinn, alþjóðlegan og umfram allt meðfæddan rétt alls fólks til að njóta allra þeirra mannréttinda sem viðurkennd hafa verið og allt fólk á að njóta. Áherslur okkar eru eðlilega á jaðarsettasta hóp samfélagsins: fólk með þroskahömlun og skyldar raskanir, einhverft fólk, fötluð börn og fötluð börn af erlendum uppruna.
Hinn vængurinn vinnur að því að breyta viðhorfum samfélagsins og auka þátttöku og samvinnu fólks, með það að markmiði að fækka hindrunum.
Opið og inngildandi samfélag er það samfélag sem við viljum búa í. Þar stefnum við að vitundarvakningu, því að þátttaka okkar allra er nauðsynleg svo við fáum og sjáum raunverulegar breytingar.
Við vinnum verkefni um tækni, nám og atvinnu, heilsu, fötluð börn, þar sem fullt og jafnt aðgengi alls fólks er meginmarkmiðið. Við höfum einnig beint sjónum að fötluðu fólki af erlendum uppruna.