Þroskahjálp merki
EN

Afhverju er Þroskahjálp að safna styrkjum?

Við erum óhagnaðardrifin mannréttindasamtök.

Öll okkar starfsemi miðar að því að bæta hag og líf fatlaðs fólks.

Við erum rekin að mestu leiti á frjálsu framlagi almennings auk tiltekinna verkefnastyrkja frá ráðuneytum.

Við erum mannréttindasamtök og öll okkar starfsemi miðar að því að bæta hag og líf fatlaðs fólks, með sérstakan fókus á fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir.

Við erum óhagnaðardrifin, sem þýðir að allur peningur sem kemur til samtakanna fer beint í framkvæmd verkefna, samstarf við ríki og sveitarfélög, og rekstur skrifstofunnar, sem bakbein allrar okkar vinnu.

Gerast mánaðarlegur styrktaraðili

Við erum þakklát fyrir þann fjölda fólks sem styður starf okkar í hverjum mánuði.

Má bjóða þér að bætast í hóp mánaðarlegra styrktaraðila okkar?

Styrkur til Þroskahjálpar þýðir styrkur til baráttunnar fyrir réttindum og hagsmunum alls fatlaðs fólks.

Sem betur fer eru margar leiðir til að berjast fyrir réttindum fatlaðs fólks.

Skráning á póstlista Þroskahjálpar

Við lofum að fara sparlega með póstsendingarnar, en það skiptir okkur miklu máli að geta sagt frá starfinu okkar, merkilegum fréttum, og gefið ykkur upplýsingar um málþing, ráðstefnur og aðra áhugaverða viðburði

Gerast sjálfboðaliði

Við erum þakklát sjálfboðaliðum okkar sem vinna með okkur að málþingum, viðburðum, fræðslu og kynningu á starfsemi samtakanna.

Kaupa Almanak Þroskahjálpar

Á hverju ári er sala almanaksins ein af stærstu fjáröflunum Þroskahjálpar.

Eitt af markmiðunum er að varpa flóðljósi á listsköpun fatlaðs fólks.

Má bjóða þér fallegt almanak á vegginn þinn?

Gerast styrktaraðili

Við erum þakklát öllu því fólki sem styrkir starf okkar, ýmist mánaðarlega eða með einstökum styrkjum.

Vilt þú kynna þér málið?

Fallegt á vegginn þinn og áhugavert að lesa

Í vefverslun Þroskahjálpar finnur þú listaverk
og bækur eftir fatlað fólk, fróðlegt lesefni
og fleira.

Skoðaðu úrvalið og styrktu starf samtakanna.