Þroskahjálp merki
EN

Stefnuskrá Landssamtakanna Þroskahjálpar

Starf Þroskahjálpar er mannréttindabarátta

Það er okkar verkefni að auka þekkingu og skilning samfélagsins á réttindum fatlaðs fólks, sem er auðvitað bara fólk og á því að njóta sömu réttinda og allir aðrir.

Við höfum sett okkur það markmið að horfa fyrst til þeirra sem eru yst á jaðrinum; fatlaðra barna, fólks með þroskahömlun, einhverfs fóllks, fólks með miklar stuðningsþarfir og þeirra sem búa við fjölþætta jaðarsetningu og mismunun, svo sem á grundvelli fötlunar og aldurs eða á grundvelli fötlunar og uppruna.

Við vinnum með fötluðu fólki, fyrir fatlað fólk.

Stefnuskrá Þroskahjálpar byggir á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Að auki hafa samtökin heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi.

Stefnuskrá samtakanna tekur mið af alþjóðlega viðurkenndum mannréttindum sem ófatlað fólk nýtur nú þegar.

Grundvallarkrafa samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er einfaldlega að allir njóti viðurkenndra mannréttinda ,en hann kallar ekki á sér réttindi fyrir fatlað fólk.

Stefna Þroskahjálpar byggist á eftirfarandi grundvallaratriðum:

Virða ber manngildi, grunnþarfir og rétt allra manna.

Full þátttaka í samfélaginu eru mannréttindi sem eiga jafnt um alla,
óháð færni og aldri. Þessi mannréttindi ná til allra þátta lífsins.

Fóstur- og nýburaskimanir.

Læknavísindi / erfðavísindi eiga að stuðla að bættri heilsu, aukinni velferð og meiri lífsgæðum alls fólks.

Öll eiga rétt til að taka eigin ákvarðanir og hafa áhrif á eigin líf.

Stjórn á eigin lífi og áhrif á ákvarðanir sem snerta það er undirstaða sannra lífsgæða.

Öll eiga rétt á stuðningi, sem tekur mið af þörfum, til þess að geta notið jafnra tækifæra á við annað fólk.

Til að njóta jafnréttis og virðingar verður fólk sem þess þarf vegna fötlunar sinnar að eiga vísan stuðning samfélagsins.

Einnig fjölskyldur fatlaðra barna.

Öll börn eiga rétt á menntun við hæfi og án aðgreiningar.

Eitt af grundvallaratriðum almennra mannréttinda er rétturinn til menntunar og skólagöngu.

Landssamtökin Þroskahjálp vilja að réttur þessi sé virtur og unnið markvisst að „einum skóla fyrir alla“ á Íslandi.


Öll eiga rétt á að búa á eigin heimili.

Hver og ein manneskja á rétt til einstaklingsmiðaðrar þjónustu
og stuðnings svo þær geti notið þeirra lífsgæða sem felst í því
að búa á eigin heimili.

Allt fullorðið fólk á rétt á að stofna fjölskyldu.

Fullorðið fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir á sama rétt og annað fólk til kynlífs og þess sambúðarforms sem það kýs sér sjálft.

Allt fullorðið fólk á rétt á atvinnu.

Atvinna er mikilvægur þáttur í sjálfsmynd allra og er ómissandi fyrir félagslega þátttöku og sjálfstæði.

Öll eiga rétt á að njóta efnahagslegs öryggis.

Efnahagslegt öryggi er grundvallarþáttur sem tryggir að fatlað fólk geti notið annarra mannréttinda, svo sem réttarins til að búa á eigin heimili og að taka þátt í samfélaginu á jafnréttisgrundvelli.

Öll eiga að njóta menningar og frístunda

Öll eiga rétt á að njóta menningar og frístunda og taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Öll eiga rétt á að njóta efri ára með reisn.

Það er réttur alls fólks að búa við öryggi á efri árum og geta notið þeirra áhyggjulaust.

Þjónusta við fatlað fólk sem komið er á efri ár skal vera fjölbreytt og miðuð við þarfir hvers og eins.

Til baka