Þroskahjálp merki
EN

Samstarfið er lykillinn

Allt fólk hefur sömu mannréttindi,

sama hvar í heiminum það býr.

Barátta Þroskahjálpar fyrir mannréttindum fatlaðs fólks á Íslandi er um leið barátta fyrir mannréttindum fatlaðs fólks alls staðar í heiminum.

Þess vegna vinnur Þroskahjálp, í samstarfi við systursamtök í Malaví, að verkefni sem hefur það að markmiði að bæta líf og aðstæður fatlaðs fólks í Malaví, með sérstaka áherslu á fötluð börn og möguleika þeirra til að fara í skóla.

Menntun er lykill að framtíð og sjálfstæðu lífi.

Aðildarríkin viðurkenna mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og eflingu þess til stuðnings innlendum aðgerðum til þess að tilgangur og markmið samnings þessa megi verða að veruleika.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 32. gr.

Í hverju felst þetta verkefni?

Að vinna með nærsamfélaginu að breytingum á viðhorfum til fötlunar og fleiri tækifærum fyrir fatlað fólk til að vera hluti af samfélaginu.

Í gegnum samstarfið öðlast Þroskahjálp dýrmæta innsýn

sem nýtist í mannréttindabaráttu á Íslandi ekki síður en í Malaví.

Verkefnið hlaut styrk frá:

  • Utanríkisráðuneytið
Fedoma

FEDOMA - Federation of Disability Organisations in Malawi

FEDOMA eru regnhlífarsamtök fatlaðs fólks í Malawi — stýrt og stjórnað af fötluðu fólki.

Samtökin vinna með stjórnvöldum í Malawi að því að móta og innleiða stefnur um réttindi fatlaðs fólks.

Samtökin leggja mikla áhersla á fötluð börn og snemmtæka íhlutun með fræðslu og vitundarvakningu.

Samtökin styðja mæður til að veita fötluðum börnum sínum umönnun og þjálfun.

Tækifæri - Réttindi - Viðhorf. Þetta eru baráttumál FEDOMA samtakanna. Þau vinna að því að skapa samfélag án aðgreiningar.
Hús í Malaví

Staða fatlaðs fólks í Malaví

Fatlað fólk er mjög líklegt til að búa við mismunun og því miður oft útskúfun.

Mikill skortur er á hvers konar hjálpartækjum fyrir fatlað fólk.

Fötluð börn eru mun líklegri til þess að alast upp við fátækt þar sem feður treysta sér ekki í uppeldishlutverkið og yfirgefa fjölskylduna.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur verið fullgiltur en talsvert vantar upp á eftirfylgni.

Fatlað fólk í Malaví býr við einhverjar erfiðustu aðstæður sem hugsast geta

Meira en tveir þriðju hlutar þjóðarinnar
búa við örbirgð (e. extreme poverty)

Aðeins 8% barna á aldrinum 6 til 23 mánaða
eru á viðunandi mataræði
sem stuðlar að eðlilegum vexti og þroska.

Matardiskar

Í Malaví er hlutfall fatlaðs fólks
hærra en gengur og gerist
vegna vannæringar og erfiðra aðstæðna
við meðgöngu og fæðingu

37% barna í Malaví
búa við vaxtarskerðingu
(eru of lágvaxin miðað við aldur)

Markmiðið með samstarfi Þroskahjálpar og FEDOMA

  • Auka þátttöku barna í skólastarfi og samfélagi.
  • Stuðla að vitundarvakningu um réttindi
    fatlaðs fólks.
  • Efla almenna þekkingu á málefnum fatlaðs fólks.
  • Tengja saman lykilaðila sem bera ábyrgð
    á þjónustu við fatlað fólk.
  • Stuðla að samfélagi án aðgreiningar.
  • Skiptast á dýrmætri reynslu, innsýn og þekkingu.
Fólk í Malaví með spjöld á lofti.

Samningur Sameinuðu þjóðanna leggur okkur skyldur á herðar um að verja réttindi fatlaðs fólks allsstaðar.

32. grein samningsins fjallar um þróunarsamvinnu og alþjóðlegt samstarf


Aðildarríkin viðurkenna mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og eflingu þess til stuðnings innlendum aðgerðum til þess að tilgangur og markmið samnings þessa megi verða að veruleika og munu gera viðeigandi og árangursríkar ráðstafanir hvað það varðar milli og meðal ríkja og, eftir því sem við á, í samvinnu við hlutaðeigandi alþjóða- og svæðisstofnanir og borgaralegt samfélag, einkum samtök fatlaðs fólks.

Slíkar ráðstafanir gætu meðal annars tekið til þess:

a) að tryggja að alþjóðlegt samstarf, þar á meðal alþjóðlegar þróunaráætlanir, nái til fatlaðs fólks og sé því aðgengilegt

b) að greiða fyrir og styðja uppbyggingu þekkingar og getu, þar á meðal með því að skiptast á og miðla upplýsingum, reynslu, þjálfunaráætlunum og bestu starfsvenjum […]

Þessu ætlum við að breyta

Þess vegna starfa Þroskahjálp og FEDOMA saman, þvert á lönd og álfur, að því að auka möguleika og þátttöku fatlaðs fólks í þróunarstarfi og innleiðingu heimsmarkmiðanna.

Simon og Anna Lára í Malaví.
Heimsmarkmiðin munu aldrei nást nema með fullri þátttöku allra, þar með talið fatlaðs fólks. Við höfum ekki efni á að hunsa eða jaðarsetja framlag 1,5 milljarða manna.

António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna

Verkefnastjórn í Malaví

  • Simon Munde

    Simon Munde

    Framkvæmdastjóri hjá FEDOMA

  • Albert Mwase

    Albert Mwase

    Svæðisstjóri FEDOMA í Mangochi

  • Clara Njawala

    Clara Njawala

    Sérfræðingur á menntaskrifstofu Mangochi

  • Charles Chikwewe

    Charles Chikwewe

    Sérkennari í Mangochi

  • Anna Lára Steindal

    Anna Lára Steindal

    Framkvæmdastjóri hjá Þroskahjálp

Heimsmarkmiðin og fatlað fólk

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru samþykkt af fulltrúum allra aðilarríkja Sameinuðu þjóðanna í september árið 2015.

Öll eru markmiðin samtengd og sett fram með loforðinu um að skilja engan eftir.

En því miður sýna rannsóknir að fatlað fólk gleymist oft við innleiðingu markmiðanna sem tekur ekki mið af þörfum þess.

Fatlað fólk er langtum líklegra til að búa við fátækt og skert tækifæri á öllum sviðum.

Þess vegna hefur fatlað fólk miklu minni möguleika en aðrir til að vera þátttakendur í samfélagi, eins og það á rétt á samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Merki Heimsmarkmiðana