Við eigum öll skilið þak yfir höfuðið
Allt fólk hefur sömu mannréttindi.
Fatlað fólk á rétt á húsnæði við hæfi og að ráða hvar það býr og með hverjum.

Öllum er mikilvægt að eiga heimili og búa við öryggi. Því miður eru möguleikar fatlaðs fólks til að eignast eigið heimili takmarkaðir og biðlistar oft langir.
Þess vegna rekur Þroskahjálp húsbyggingasjóð sem hefur það að markmiði að fjölga íbúðum sem standa fötluðu fólki til boða.
Þroskahjálp á og rekur húsnæðið en sveitarfélögin, þar sem húsnæðið er staðsett, sér um úthlutun og veitir íbúum þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda og eiga rétt á.
…fatlað fólk hafi tækifæri til þess að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra, og að því sé ekki gert að eiga heima í tilteknu búsetuformi.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 19. gr.
Íbúðir Húsbyggingarsjóðs eru 103 og staðsettar víðsvegar um landið
- Reykjavík: 24 íbúðir og 4 starfsmannarými
- Seltjarnarnes: 2 íbúðir
- Kópavogur: 5 íbúðir
- Hafnarfjörður: 7 íbúðir og 1 starfsmannarými, 1 sambýli 2 íbúðir, 3 herbergi og starfsmannarými
- Mosfellsbær: 5 íbúðir og 2 starfsmannarými
- Sandgerði: 5 íbúðir og 1 starfsmannarými
- Akranes: 5 íbúðir og 1 starfsmannarými
- Fljótsdalshérað: 4 íbúðir
- Akureyri: 14 íbúðir og 2 starfsmannarými
- Dalvík: 4 íbúðir og 1 starfsmannarými
- Sauðárkrókur: 5 íbúðir og 1 starfsmannarými

Hugmyndafræðin
Fatlað fólk á jafnan rétt og aðrir á friðhelgi einkalífsins, að lifa sjálfstæðu lífi og að velja sér búsetu.
Húsnæði spilar þar algjört lykilhlutverk.
Huga þarf að þáttum eins og samfélagi án aðgreiningar, aðgengismálum og að búseta fatlaðs fólks sé ekki stofnanavædd umfram það sem brýn þörf er á. Heimili þar sem virðing, óskir og þarfir húsráðanda eru í fyrirrúmi eru grundvallarskilyrði fyrir sönnum lífsgæðum.
Herbergjasambýli samrýmast illa þessari hugmyndafræði og tók íslenska ríkið ákvörðun um að vinna að því að slíkum sambýlum skyldi í áföngum lokað strax árið 2010, en ljúka þarf þeirri vinnu.
Íbúðir Húsbyggingasjóðs bjóða upp á gott aðgengi og leiguverð sem er eins lágt og afborgun lána leyfir okkur Eins og það á að vera.
Lagaleg réttindi
Réttindi fatlaðs fólks til friðhelgi einkalífsins, að lifa sjálfstæðu lífi og að velja sér búsetu eru tryggð m.a. í nokkrum greinum Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (sjá t.d. gr. 17, 19, 22), í Stjórnarskrá Íslands (gr. 65 og 66) og með íslenskum lögum (sjá t.d. 38/2018).
Í 9. gr. laga 38/2018 segir:
„Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu.“
Í reglugerð 370/2016 um Húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk segir í 3. gr.:
„Sé þörf fyrir sérstakt húsnæði vegna sérstakra eða mikilla þjónustuþarfa fatlaðs fólks skal þjónustuaðili sem ber ábyrgð á þjónustunni tryggja að slíkt húsnæði sé til staðar.“
Lagalegur réttur fatlaðs fólks til þess að hið opinbera stuðli að uppbyggingu húsnæðis fyrir þennan hóp er því ótvíræður og ríkur.
Þörfin
Í skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 frá apríl 2022 kom fram að 486 einstaklingar voru þá á biðlista eftir sértækri búsetu fyrir fatlað fólk. Samkvæmt Áfangaskýrslu II starfshóps um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk sem kom út í september 2024 var fjöldinn á þeim biðlista 452.
Ef áfram verður haldið að vinna á þessum biðlista á sama hraða, verður hann ekki tæmdur fyrr en eftir rúm 30 ár, sem er óviðunandi.
Allmörg þeirra sem eru á þessum biðlista hafa verið þar óforsvaranlega lengi, sem sést ágætlega á meðalaldri þeirra sem eru á biðlistanum, en það er 35 ár.
Enn býr fjöldi fatlaðs fólks á herbergjasambýlum, 15 árum eftir að stjórnvöld sjálf settu sér markmið um að loka þessháttar búsetuúrræðum, og þá búa um 50 fatlaðir einstaklingar undir 60 ára aldri á hjúkrunarheimilum fyrir eldri borgara.
Þörfin er því augljós og brýn, og hafa stjórnvöld viðurkennt þessa þörf, m.a. með samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga frá desember 2023 um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk, þar sem gert er ráð fyrir að unnið verði að gerð 7-10 ára áætlunar um að uppfylla þörf fatlaðs fólks fyrir sértæk húsnæðisúrræði.
Staðan í dag
Engin áætlun er í gangi sem sérstaklega greiðir fyrir íbúðauppbyggingu fyrir fatlað fólk, ekkert lagaverk, umfram 4% viðbótarframlag inn í stofnframlagakerfinu vegna „íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga og vegna íbúðarhúsnæðis sem ætlað er námsmönnum eða öryrkjum.“
Sveitarfélög og óhagnaðardrifin leigufélög geta sótt um þessi stofnframlög til uppbyggingar á íbúðarhúsnæði fyrir fatlað fólk, og starfrækja Landssamtökin Þroskahjálp sérstakan Húsbyggingasjóð Þroskahjálpar sem unnið hefur innan þessa stofnframlagakerfis síðustu ár og bæði keypt stakstæðar íbúðir og reist íbúðarkjarna og fengið til þess stofnframlög.
Stofnframlagakerfið gerir hinsvegar kröfu um að hvert verkefni fyrir sig sé sjálfbært í rekstri, en jafnframt að leigjendur séu ekki rukkaðir um húsaleigu sem nemi meira en 25% af heildartekjum þeirra.
Sveitarfélög á Íslandi eru skuldbundin með lögum að sjá fötluðu fólki fyrir húsnæði sem skal bæði vera hentugt og á leiguverði sem fatlað fólk ræður við að greiða.
Markmið Húsbyggingasjóðs Þroskahjálpar er að tryggja að sveitarfélög standi betur við þessar skuldbindingar og að sveitarfélög geri það fyrr.

Hvað er til ráða?
[ Vantar texta ]
Spurt og svarað um Húsbyggingasjóð
Hér kemur texti um að það er stöðug og hress vinna við umsýslu á heimilunum, samskiptum við íbúa, og að þrýsta á stjórnvöld og sveitarfélög stór og smá að sinna lögbundinni skyldu sinni.
Skipulagsskrá Húsbyggingasjóðs
Húsbyggingasjóður
Netfang
husbyggingasjodur@throskahjalp.is
Sími
588 9390
Skrifstofa
Háaleitisbraut 13
108 Reykjavík
Starfsfólk

Símon Gísli Ólafsson
Verkefnastjóri Húsbyggingarsjóðs
simon@throskahjalp.is
Helgi Vattnes
Viðhald fasteigna Húsbyggingasjóðs
helgi@throskahjalp.is
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson
Skrifstofustjóri Þroskahjálpar
thorarinn@throskahjalp.is
Anna Lára Steindal
Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
annalara@throskahjalp.is
Stjórn
Friðrik Sigurðsson formaður
Atli Rafn Kristinsson
Björn Rúnar Guðmundsson
Jarþrúður Þórhallsdóttir
Sigrún Broddadóttir
Samstarfsaðilar Húsbyggingasjóðs
Samstarfsaðilarnir eru fjölmargir og ólíkir, enda verkefnin mörg og margbreytileg.
Sem dæmi vinnum við með einstökum verktökum við reglulegt viðhald og endurbætur á heimilum.
Við vinnum með arkitektum sem koma jafnt að skipulagningu heimila sem og teikningum á byggingum, lóðum, og hvernig búa má vel að nágrenni og grænum svæðum.
Þar njótum við þjónustu verktakafyrirtækja þegar kemur að byggingu og risi íbúðakjarna og framtíðarheimila fólks.
En mikilvægasta og kærasta samstarfið okkar er með fólkinu sem býr á heimilunum. Enda snýst starfsemi Húsbyggingasjóðs alltaf um að veita fólki hlýju og öryggi til frambúðar.