Vörður í sögu Þroskahjálpar
1976–2026
Frá 1976 hefur Þroskahjálp barist fyrir því að fatlað fólk geti lært, unnið, eignast heimili og tekið þátt í samfélaginu. Hér eru nokkrir áfangar í starfi samtakanna og sameiginlegri réttindabaráttu fatlaðs fólks.
1976
Þrettán félög sameinast um jafnrétti
Þroskahjálp er stofnuð 16. október af þrettán félögum. Markmiðið er skýrt: fólk með þroskahömlun eigi sömu réttindi og annað fólk. Menntun, húsnæði og lög sem tryggi réttindi fólks eru meðal fyrstu baráttumálanna.
1978
Tímaritið Þroskahjálp hefur göngu sína
Þroskahjálp hefur útgáfu tímarits um málefni fatlaðs fólks. Þar birtast greinar um réttindi, þjónustu og lífsskilyrði, allt frá lagasetningu til þess hvernig fólk vill búa. Tímaritið verður vettvangur fræðslu og umræðu og varðveitir sögu baráttunnar: kröfurnar, ágreininginn og hugmyndirnar um annað og betra samfélag.
1979
Stuðningur við að búa heima
Ný lög leggja áherslu á að foreldrar fái aðstoð til að ala börn sín upp heima og að fullorðið fólk með þroskahömlun geti búið á litlum heimilum. Áherslan færist frá stofnunum að þjónustu nær fólkinu sjálfu.
1980
Gistiaðstaða fyrir fjölskyldur af landsbyggðinni
Þroskahjálp kaupir hús að Melgerði í Kópavogi. Þar geta fjölskyldur af landsbyggðinni dvalið án endurgjalds þegar fötluð börn þeirra þurfa að sækja greiningu eða þjálfun á höfuðborgarsvæðinu.
1980
Fyrsta almanakið kemur út
Þroskahjálp gefur út sitt fyrsta almanak til fjáröflunar. Þar hefst árleg hefð sem verður stærsta fjáröflun samtakanna og styður við baráttuna fyrir réttindum fatlaðs fólks.
1985
Tölvur sem opna möguleika
Þroskahjálp og fleiri hagsmunasamtök stofna Tölvumiðstöð fatlaðra. Verkefnið snýst um að fatlað fólk geti nýtt tölvutækni og þann aðgang að samskiptum, námi og störfum sem hún getur veitt.
1985
Listaverk prýða almanakið
Fyrsta listaverkaalmanak Þroskahjálpar kemur út. Listaverk verða hluti af árlegri fjáröflun og rata með almanakinu inn á heimili um land allt.
1987
Krafa um að leggja Kópavogshæli niður
Landsþing Þroskahjálpar samþykkir að leggja eigi Kópavogshæli niður. Tillagan fær misjafnar undirtektir. Hún markar skýra afstöðu samtakanna: fólk með þroskahömlun á að geta átt heimili og líf utan stofnana.
1989
Húsbyggingasjóður stofnaður
Þroskahjálp stofnar Húsbyggingasjóð til að vinna að húsnæðismálum fatlaðs fólks. Með sjóðnum verður uppbygging heimila fastur þáttur í starfi samtakanna, samhliða baráttunni fyrir réttinum til að ráða eigin búsetu.
1991
Stuðningur til að leita réttar síns
Þroskahjálp og fleiri stofna Minningarsjóð Jóhanns Guðmundssonar læknis. Hlutverk hans er að styrkja fatlað fólk til að ná rétti sínum. Réttindi þurfa að vera eitthvað sem fólk getur látið reyna á, líka þegar það kostar peninga.
1992
Eigin íbúð í stað stofnunar
Í nýrri stefnuskrá krefst Þroskahjálp þess að sólarhringsstofnanir verði lagðar niður og fólki með þroskahömlun tryggðar eigin íbúðir. Húsnæði og stuðningur eigi að taka mið af þörfum hvers og eins.
1993
Fólk með þroskahömlun stofnar eigin samtök
Átak verður til upp úr umræðuhópum sem Þroskahjálp kom á fót árið 1985. Fólk með þroskahömlun ákveður að stofna eigið félag til að tala fyrir réttindum sínum og ráða eigin lífi. Átak er stofnað 20. september 1993 og gengur í Þroskahjálp árið eftir.
1993
Fyrsti Múrbrjóturinn afhentur
Þroskahjálp afhendir Múrbrjótinn í fyrsta sinn á alþjóðadegi fatlaðs fólks, 3. desember. Viðurkenningin er veitt fyrir að brjóta niður hindranir í lífi fatlaðs fólks og vekur athygli á því sem önnur geta lært af.
1995
Skref frá stofnanabúsetu
Stofnuninni Sólborg á Akureyri er lokað og ákveðið að hefja fyrsta áfanga í að bjóða íbúum Kópavogshælis aðra búsetu. Þetta eru skref í átt að þeirri breytingu sem Þroskahjálp hefur kallað eftir: að fólk geti búið utan stofnana.
1995
Foreldrar fá ráðgjafa
Þroskahjálp ræður foreldraráðgjafa. Foreldrar fatlaðra barna fá þannig aðgang að ráðgjöf hjá samtökunum þegar þau þurfa að leita upplýsinga, sækja þjónustu eða gæta réttinda barna sinna.
2000
Fréttir á auðlesnu máli
Auðlesin síða birtist í Morgunblaðinu. Þroskahjálp hafði fyrst óskað eftir slíkri síðu árið 1988. Að geta fylgst með fréttum og samfélagsumræðu á ekki að ráðast af því hversu flókinn texta fólk getur lesið.
2002
Nám heldur áfram eftir skóla
Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands taka við rekstri fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks og stofna sjálfseignarstofnun um starfsemina. Fjölmennt verður vettvangur fyrir áframhaldandi nám og þátttöku eftir að hefðbundinni skólagöngu lýkur.
2003
List án landamæra
Þroskahjálp stendur með fleiri að listahátíðinni List án landamæra. Fatlað listafólk fær vettvang til að sýna verk sín og taka þátt í menningarlífinu.
2004
Sjónarhóll opnar og starfsemin sameinast undir einu þaki
Sjónarhóll tekur til starfa og veitir foreldrum barna með sérþarfir ráðgjöf og stuðning við að sækja þjónustu. Þroskahjálp, Umhyggja, ADHD samtökin og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra kaupa saman húsið að Háaleitisbraut 13. Þar kemur starfsemin saman undir einu þaki, í eigin húsnæði.
2005
Upplýsingar fyrir foreldra sem þurfa skýrt mál
Þroskahjálp gefur út leiðbeiningar um meðgöngu og fyrstu mánuðina í lífi barns fyrir foreldra sem þurfa aðgengilegar upplýsingar. Stuðningurinn beinist að fólki í foreldrahlutverkinu og því sem þau þurfa að vita í daglegu lífi.
2007
Ný námsleið við Kennaraháskólann
Tveggja ára starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun hefst við Kennaraháskóla Íslands, í samstarfi við Þroskahjálp og Fjölmennt. Námið opnar nýja leið eftir framhaldsskóla og tengir saman háskólanám, starfsþjálfun og þátttöku í háskólasamfélaginu.
2007
Mannréttindasamningur á auðskildu máli
Ísland undirritar samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þroskahjálp gefur hann út á auðskildu máli svo fleiri geti kynnt sér eigin réttindi. Samtökin kalla jafnframt eftir því að Ísland fullgildi samninginn.
2011
Fólk með þroskahömlun fræðir önnur um réttindi
Sjö einstaklingar með þroskahömlun fá þjálfun sem sendiherrar samnings Sameinuðu þjóðanna í samstarfi Þroskahjálpar og Fjölmenntar. Þau undirbúa fræðslu fyrir jafningja og annað fólk, meðal annars starfsfólk í þjónustu við fatlað fólk.
2011
Með okkar augum kemur í sjónvarpið
Fyrsta þáttaröðin af Með okkar augum er sýnd. Upphafið er námskeið í sjónvarpsgerð sem Þroskahjálp og Fjölmennt stóðu fyrir árið 2009. Fólk með þroskahömlun tekur sjálft viðtöl og fjallar um samfélagið frá eigin sjónarhorni.
2011
Réttur til persónulegs talsmanns
Ný lög um réttindagæslu tryggja fötluðu fólki sem þarf stuðning við að gæta hagsmuna sinna rétt til persónulegs talsmanns. Talsmaðurinn á að styðja fólk við ákvarðanir og við að leita réttar síns. Þroskahjálp hafði lengi barist fyrir slíku fyrirkomulagi.
2012
Takmörk sett við beitingu nauðungar
Lög um réttindagæslu eru styrkt með ákvæðum um að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk. Sett eru skilyrði og eftirlit með inngripum sem skerða frelsi og sjálfsákvörðunarrétt. Þetta hafði verið baráttumál Þroskahjálpar um árabil.
2015
Fólkið sem notar þjónustuna veitir ráðgjöf
Þroskahjálp hefur frumkvæði að því, með Fjölmennt og Reykjavíkurborg, að þjálfa ráðgjafahóp fólks með þroskahömlun. Hópurinn á að fara yfir mál og ráðleggja borginni um þjónustu við fatlað fólk.
2016
Ísland fullgildir samninginn
Níu árum eftir undirritun fullgildir Ísland samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ríkið skuldbindur sig þar með samkvæmt þjóðarétti til að framfylgja honum. Baráttan heldur áfram fyrir því að réttindin verði að veruleika í daglegu lífi.
2016
Fyrsta stoltganga Átaks
Átak stendur fyrir sinni fyrstu stoltgöngu með stuðningi Þroskahjálpar. Um 1.200 manns taka þátt. Fólk með þroskahömlun tekur sér pláss í borginni, fagnar eigin samfélagi og vekur athygli á réttindum sínum.
2018
Notendastýrð persónuleg aðstoð í lög
Notendastýrð persónuleg aðstoð, NPA, fær lagastoð. Hún byggir á því að fatlað fólk stýri sjálft þeirri aðstoð sem þau fá í daglegu lífi. Þroskahjálp fagnar áfanganum en krefst þess jafnframt að fjármögnun fylgi og að fólk sem þarf stuðning við að stjórna aðstoðinni hafi líka aðgang að henni.
2020
Ungt fatlað fólk fær eigin vettvang
Ungmennaráð Þroskahjálpar tekur til starfa. Þar fær ungt fatlað fólk vettvang til að ræða eigin áherslur og hafa áhrif á starf samtakanna og málefni sem varða framtíð þeirra.
2021
Sýndarveruleiki til að kynnast nýjum aðstæðum
Sýndarveruleikaverkefni Þroskahjálpar hefst. Þar getur fólk kynnst ókunnum aðstæðum áður en þau mæta á staðinn. Meðal viðfangsefna verkefnisins verða að taka strætó og kjósa.
2022
Hvað tekur við eftir framhaldsskóla?
Með herferðinni Hvað er planið? vekur Þroskahjálp athygli á skorti á náms- og atvinnutækifærum fyrir ungt fatlað fólk. Tæplega 6.700 undirskriftir eru afhentar stjórnvöldum og Samtökum atvinnulífsins til stuðnings fleiri tækifærum eftir framhaldsskóla.
2022–2023
Samstarf um skólagöngu fatlaðra barna í Malaví
Fyrsta könnunarheimsókn Þroskahjálpar til Malaví er farin árið 2022 og fjögurra ára styrktarsamkomulag tekur við árið 2023. Með FEDOMA, samtökum sem fatlað fólk stýrir, er unnið að því að fötluð börn komist í skóla og fái stuðning í náminu. Samstarfið nær líka til kennara, fjölskyldna og sveitarstjórnaraðila.
2023
Fatlað listafólk á öllum síðum almanaksins
Listaverkaalmanak Þroskahjálpar fyrir árið 2023 sýnir verk tólf fatlaðra listamanna. Árleg fjáröflun samtakanna verður um leið vettvangur fyrir listafólkið og verk þess á heimilum um land allt.
2025
Fólk með þroskahömlun kennir hönnunarnemum
Inngildandi hönnun er fyrst kennd við Listaháskóla Íslands í samstarfi við Þroskahjálp. Fólk með þroskahömlun kennir meistaranemum í hönnun. Saman móta þau viðfangsefnin og kanna hvað hönnun getur gert betur.
2025
Upplýsingar fyrir fjölskyldur á einum stað
Upplýsingar sem Þroskahjálp hefur unnið um réttindi og þjónustu við fötluð börn eru aðgengilegar á Ísland.is, á íslensku og ensku. Þar geta fjölskyldur kynnt sér meðal annars stuðning, skólamál, hjálpartæki og þjónustu án þess að þurfa fyrst að vita hvaða stofnun ber ábyrgð á hverju.
2025
Samningurinn verður hluti af íslenskum lögum
Alþingi samþykkir 12. nóvember að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Samningurinn fær þar með lagagildi hér á landi. Þetta er áfangi í langri baráttu fatlaðs fólks og samtaka þess fyrir sterkari réttindavernd.
2026
Stjórnmálaflokkar fá Flokkahjálp
Fyrir sveitarstjórnarkosningar býður Þroskahjálp stjórnmálaflokkum stefnutillögur um réttindi fatlaðs fólks til að taka upp í eigin stefnuskrár. Flokkahjálp gerir kjósendum líka kleift að bera saman áherslur flokkanna.
2026
Ný leið til að láta reyna á réttindabrot
Ísland fullgildir valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Að uppfylltum skilyrðum verður hægt að bera meint brot Íslands á samningnum undir nefnd SÞ. Þroskahjálp hafði lengi kallað eftir þessari leið til að leita réttar síns. Bókunin tekur gildi gagnvart Íslandi 20. júní.
Merkin okkar í gegnum árin
Merki samtakanna og afmælismerkin, í tímaröð.

1976

1986

1989

2001 · 25 ára afmæli

2002–2016

2016 · 40 ára afmæli

2017–2022

Frá 2022
Hönnuður: Einar Gylfason

2026 · 50 ára afmæli
Almanakið á heimilum landsins
Fyrsta almanakið kom út 1980 og fyrsta listaverkaalmanakið 1985. Síðan 2023 eru öll verkin eftir fatlað listafólk.
1980
1983
1985
2014
2018
2019
2020
2023
2025
2026
2027