Þroskahjálp merki
EN

Þroskahjálp

Landssamtökin Þroskahjálp eru mannréttindasamtök með næstum 50 ára sögu.

Samtökin urðu til við sameiningu félaga sem vinna að réttinda– og hagsmunamálum fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir.

Markmið samtakanna hefur ávallt verið að tryggja fötluðu fólki fullt jafnrétti á við aðra.

„Skylt er að veita viðeigandi aðlögun þegar einstaklingur þarf aðgang að aðstæðum eða umhverfi sem ekki er aðgengilegt fyrir hann.“

– Úr samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks 2020

Almanak Þroskahjálpar 2026

7 fatlaðir listamenn áttu verk í almanaki Þroskahjálpar 2026

Kaupa almanak
Almanak Þroskahjálpar 2026

Orlofshús og gistiheimili

Þroskahjálp rekur gistiheimili í Kópavogi, og heilsárshús á Flúðum.

Daðahús – orlofshús

Daðahús

Daðahús á Flúðum, við Akurgerði 10, er heilsárshús Þroskahjálpar og er útbúið sérstaklega fyrir fatlað fólk.

Í Daðahúsi eru tvö tímabil: vetur og sumar

Vetrartímabilið er frá október út apríl
Á veturna er húsið opið öllum umsækjendum, og hægt að bóka allt árið.
Til að bóka vetrardvöl, hafið samband við skrifstofu í síma 5889390
eða sendið tölvupóst á dadahus@throskahjalp.is

Sumartímabilið er frá maí til október
Á sumrin er úthlutun eftir umsóknum, sem eru auglýstar sérstaklega í mars eða apríl á hverju ári.
Fatlað fólk og aðstandendur þeirra njóta forgangs.
Þroskahjálp velur úr umsóknum og skoðar hvaða einstaklingar hafa áður fengið úthlutun á síðustu árum.

Sjá Daðahús
Engjaþing — gistiheimili

Engjaþing

Þroskahjálp hefur um árabil boðið fötluðum börnum af landsbyggðinni og aðstandendum þeirra að nýta sér gistiaðstöðu á vegum samtakanna þegar sækja þarf þjónustu í höfuðborgina vegna fötlunar þeirra.