Orlofshús og gistiaðstaða
Þroskahjálp rekur orlofshús á Flúðum fyrir fatlað fólk og aðstandendur þeirra, og gistiaðstöðu í Kópavogi fyrir fjölskyldur fatlaðra barna af landsbyggðinni sem sækja þjónustu á höfuðborgarsvæðið.
Daðahús á Flúðum
Daðahús á Flúðum, við Akurgerði 10,
er heilsárshús Þroskahjálpar
og er útbúið sérstaklega fyrir fatlað fólk.

Í Daðahúsi eru tvö tímabil: vetur og sumar
Vetrartímabilið er frá október út apríl
Á veturna er húsið opið öllum umsækjendum, og hægt að bóka allt árið.
Til að bóka vetrardvöl, hafið samband við skrifstofu í síma 5889390
eða sendið tölvupóst á dadahus@throskahjalp.is
Sumartímabilið er frá maí til október
Á sumrin er úthlutun eftir umsóknum, sem eru auglýstar sérstaklega í mars eða apríl á hverju ári.
Fatlað fólk og aðstandendur þeirra njóta forgangs.
Þroskahjálp velur úr umsóknum og skoðar þ.á m. hvaða einstaklingar hafa áður fengið úthlutun á síðustu árum.
Daðahús á Flúðum er orlofshús Þroskahjálpar
Daðahús er einbýlishús sem stendur við Akurgerði 10, Flúðum.
Húsið er útbúið sérstaklega fyrir fatlað fólk.
Hleðslustöð er fyrir rafbíla, internet og Apple TV.
Aðgengi og aðbúnaður er til fyrirmyndar.
Í húsinu eru 5 herbergi:
— 4 svefnherbergi
— baðherbergi, vel útbúið fyrir fatlað fólk
— gestasalerni með sturtu
Svefnpláss fyrir 7 til 10 manns:
— 6 rúm
— 1 sjúkrarúm
— lausar dýnur
Að auki:
— Lyftari
— Heitur pottur, með aðgengi fyrir lyftara
— Sturtustóll
— Sturtubekkur
Vetrarbókanir
Vetrartímabil fyrir Daðahús er frá október út apríl.
Til að bóka Daðahús hafðu samband á dadahus@throskahjalp.is eða í síma 588 9390.
- Á veturna er lágmarksdvöl 2 nætur.
Verð fyrir fyrstu tvær næturnar:
25.000 kr. - Hver sólarhringur eftir það:
9.000 kr. - Vika:
60.000 kr.
Síðast uppfært 25.3.2026
Sumarúthlutun
Sumartímabilið í Daðahúsi er frá maí til október.
Opnað fyrir umsóknir í mars/apríl.
Engjaþing í Kópavogi
Gistiaðstaða fyrir fötluð börn af landsbyggðinni og aðstandendur þeirra, þegar sækja þarf þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Þroskahjálp hefur um árabil boðið fjölskyldum gistingu þegar sækja þarf þjónustu í höfuðborgina vegna fötlunar barns. Eftir endurnýjun húsnæðisins getum við nú aftur boðið upp á þessa mikilvægu þjónustu.

Íbúðin
Íbúðin er í Engjaþingi 5–7, í litlu fjölbýli á fallegum stað rétt ofan við Elliðavatn. Hún er fullbúin og aðgengileg, með tveimur herbergjum og fjórum rúmum, þar af einu sjúkrarúmi.


Endurgjaldslaust fyrir eina fjölskyldu í senn
Íbúðin er lánuð einni fjölskyldu í senn, endurgjaldslaust. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga styrkir þessa þjónustu Þroskahjálpar.
Hvernig fæ ég íbúðina lánaða?
Sendu okkur póst á throskahjalp@throskahjalp.is til að fá íbúðina lánaða eða fá frekari upplýsingar.
