Aðildarfélög Þroskahjálpar
Þroskahjálp eru landssamtök margra félaga um land allt.
Við njótum góðs af samstarfi við aðildarfélög okkar, nýtum þeirra reynslu og þekkingu í að styrkja baráttu fyrir réttindum fatlaðs fólks.
Ás styrktarfélag
Almannaheillafélag með þjónustu við fatlað fólk, þá helst fólk með þroskahömlun
Átak – félag fólks með þroskahömlun
Átak gætir að hagsmunamálum félagsfólks, tryggir réttindi og lífsgæði fólks með þroskahömlun, og vinnur að vitundarvakningu um fólk með þroskahömlun
Downs-félagið
Félagið stendur fyrir og stuðlar að samveru félagsmanna, veitir fræðslu, sinnir réttindagæslu og gætir hagsmuna einstaklinga með Downs heilkenni.
Einhverfusamtökin
Samtökin vilja bæta þjónustu við einhverfa, standa vörð um lögbundin réttindi þeirra og stuðla að fræðslu um málefni fólks á einhverfurófi.
Foreldrafélag Klettaskóla
Félagið vinnur að hagsmunamálum núverandi og fyrrverandi nemenda í Klettaskóla, styður þá og styrkir.
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar
Meginmarkmið félagsins er að efla Tónstofuna, tónlistarskóla þar sem nemendur með sérþarfir hafa forgang.
Styrktarfélag fatlaðra á Vestfjörðum
Félagið vinnur að réttindamálum fatlaðra á Vestfjörðum.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Meginmarkmið félagsins er að stuðla að velferð fólks með fötlun, þá einkum barna. Félagið rekur m.a. Æfingastöðina við Háleitisbraut og Reykjadal, sumar- og helgardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.
Þroskahjálp á Austurlandi
Megintilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni fatlaðra á Austurlandi, stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og vinna að úrbótum í málaflokknum.
Þroskahjálp á Norðurlandi eystra
Megintilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni fatlaðra á Norðurlandi eystra, stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og vinna að úrbótum í málaflokknum.
Þroskahjálp á Suðurlandi
Megintilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni fatlaðra á Suðurlandi, stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og vinna að úrbótum í málaflokknum.
Þroskahjálp á Suðurnesjum
Megintilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni fatlaðra á Suðurnesjum, stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og vinna að úrbótum í málaflokknum.
Þroskahjálp í Vestmannaeyjum
Megintilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni fatlaðra í Vestmannaeyjum, stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og vinna að úrbótum í málaflokknum.
Þroskahjálp á Vesturlandi
Megintilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni fatlaðra á Vesturlandi, stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og vinna að úrbótum í málaflokknum.
Þroskaþjálfafélag Íslands
Félagið er fag- og stéttarfélag þroskaþjálfa. Sem fagfélag stendur það m.a. fyrir upplýsingagjöf um málefni fatlaðs fólks með það að markmiði að auka lífsgæði þeirra og þáttöku í samfélaginu.
„Meginreglur samnings þessa eru eftirfarandi: ...full og árangursrík þátttaka í samfélaginu án aðgreiningar“
– samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 3. gr.