Þroskahjálp merki
EN

Ekki hanna fyrir, heldur hanna með

Allt fólk á rétt á að hafa áhrif á umhverfið, þjónustuna og samfélagið sem það tekur þátt í — líka fatlað fólk.

Fatlað fólk mætir ekki aðeins hindrunum í manngerðu umhverfi. Hindranir geta einnig falist í samskiptum, viðhorfum og kerfum sem útiloka fólk frá námi, atvinnu og virkri samfélagsþátttöku. Til að ryðja þeim úr vegi þarf að hlusta á fólk sem þekkir þær af eigin raun.

Þess vegna vinnur Þroskahjálp með Listaháskóla Íslands að námskeiðinu Inngildandi hönnun í meistaranáminu Design and New Environments. Í tíu vikna námskeiðinu vinna nemendur með fötluðu fólki að raunverulegum áskorunum og tækifærum sem samstarfsfólk þeirra skilgreinir sjálft.

„Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu [...] skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess.“

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 4. gr.

Í verkefninu er ekki hannað fyrir fatlað fólk heldur með fötluðu fólki. Byggt er á þeirri grundvallarhugmynd að fatlað fólk búi yfir mikilvægri sérþekkingu á eigin lífi og þeim hindrunum sem það mætir.

Með samtali, vinnustofum og prótótýpum kanna meistaranemar og fatlaðir gestakennarar hvernig hönnun getur aukið þátttöku, jafnrétti og sjálfræði. Útkoman getur verið af ýmsum toga, svo sem áþreifanleg lausn, ný hugmynd, breytt verklag eða leið til að auðvelda samskipti og samvinnu.

Verkefnið byggir á gagnkvæmri virðingu, skilningi, og samsköpun. Þannig öðlast verðandi hönnuðir þekkingu sem getur stuðlað að því að þjónusta, vörur og samfélag séu frá upphafi hönnuð fyrir mannlegan fjölbreytileika.