Þroskahjálp merki
EN

Að finna heiminn opnast fyrir sér

Að búa til sýndarveruleika til að þjálfa fólk með þroskahömlun í athöfnum til sjálfstæðara lífs hefur aldrei verið gert á á Íslandi.

Undanfarna mánuði hafa Landssamtökin Þroskahjálp unnið að spennandi verkefni í samstarfi við Piotr Loj, frumkvöðul á sviði sýndarveruleika og eiganda Virtual Dream Foundation.

Þetta er spennandi tilraunaverkefni og við vonumst til að það muni hjálpa fólki með þroskahömlun til þess að takast á við nýjar og krefjandi aðstæður og til þess að auka sjálfstæði og þátttöku í samfélagi.

Samstarfsaðilar í verkefninu eru Fjölmennt og Reykjavíkurborg. Þau munu aðstoða einstaklinga sem vilja nýta sér sýndarveruleikann til þjálfunar.

Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, og Elko, sem gaf sjö sýndarveruleikagleraugu sem verða notuð til þjálfunar.

Í gegnum sýndarveruleika getur fatlað fólk æft sig eins oft og þörf krefur við öruggar aðstæður þangað til fólk treystir sér til þess að stíga skrefið í raunveruleikanum.

Umhverfið er mjög raunverulegt og við leggjum áherslu á að hafa þá sýndarveruleika sem við vinnum eins nálægt veruleikanum og mögulegt er.

Sýndarveruleiki

Fjórir sýndarveruleikar, ótal tækifæri!

Gerðir voru fjórir sýndarveruleikar sem veita þjálfun í að:

1

Mæta á kjörstað og kjósa.

Tekið upp í kjördeild í Ráðhúsi Reykjavíkur

Hér er hægt að æfa allt ferlið frá því að mæta á kjörstað þar til atkvæði hefur verið skilað í kjörkassann

Gengið með sýndarveruleikagleraugu

2

Taka strætó.

Tekið upp í samvinnu við Strætó.

Ferlið hér nær frá því að bíða á stoppistöð, fara um borð í réttan vagn, hvernig við hegðum okkur í vagninum þegar hann er á ferð, hvenær og hvernig við látum vita að við viljum fara út, og hvað er best að gera þegar við komum út úr vagninum.

Sýndarveruleiki í strætó

3

Að fara í sumarbúðir.

Tekið upp í samstarfi við sumarbúðirnar í Reykjadal.

Börn sem koma í Reykjadal eru oft mjög kvíðin og sum þora alls ekki að fara.

Þegar þau mæta reynist dvölin þó oft mjög valdeflandi.

Þessi veruleiki er tekinn upp í samstarfi við Reykjadal og sýnir móttöku við komu í sumarbúðirnar í Reykjadal, aðstæður og umhverfi.

Sýndarveruleiki í sumarbúðum

4

Að leita sér aðstoðar eftir ofbeldi.

Tekið upp í samstarfi við Bjarkarhlíð.

Því miður sýna allar rannsóknir að fatlað fólk er allt að fimm sinnum líklegra til þess að verða fyrir ofbeldi.

En fatlað fólk er ólíklegra en aðrir þolendur til að fá aðstoð til að vinna úr ofbeldinu.

Þessi veruleiki sýnir hvernig það er að koma í Bjarkarhlíð, hvernig Bjarkarhlíð tekur á móti fólki, og hvaða aðstoð er í boði fyrir þolendur.

Með þjálfun í sýndarveruleika verður umhverfi Bjarkarhlíðar, og jafnvel einstakir starfsmenn, aðeins kunnuglegra.

Sýndarveruleiki þegar leitað er aðstoðar