Múrbrjóturinn
Brjótum niður múra og eflum mannréttindi
Að komast í nám. Fá vinnu við hæfi. Taka þátt í félagslífi. Fá að segja sína sögu og hafa áhrif á ákvarðanir sem varða eigið líf.
Múrbrjóturinn er viðurkenning Þroskahjálpar til fólks, félaga og vinnustaða sem ryðja hindrunum úr vegi fatlaðs fólks. Hann er veittur á alþjóðadegi fatlaðs fólks, 3. desember. Fyrsta viðurkenningin var veitt árið 1993, þá fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki, og frá 1999 hefur hún náð til fjölbreyttara starfs að réttindum og þátttöku fatlaðs fólks.

Hvaða múra erum við að tala um?
Hindranirnar eru ekki alltaf sýnilegar. Þær geta falist í inntökuskilyrðum skóla, ráðningarvenjum eða því að gera ekki ráð fyrir fötluðu fólki í félagsstarfi. Þær geta líka verið lágar væntingar: að ákveða fyrir fram hvað fólk geti lært, gert eða lagt af mörkum.
Múrbrjóturinn vekur athygli á fólki sem hefur breytt þessu í verki. Fólki sem hefur endurskoðað vinnubrögð, skapað tækifæri eða tekið slaginn fyrir eigin réttindum og annarra.
Breytingar sem skipta máli í daglegu lífi
Í gegnum árin hefur Múrbrjóturinn meðal annars verið veittur fyrir að auðvelda fólki með þroskahömlun ökunám, skapa atvinnutækifæri með stuðningi og gera fötluðum börnum kleift að ganga í heimaskólann sinn.
Hann hefur líka verið veittur fyrir rannsóknir unnar með fólki með þroskahömlun, listsköpun og fjölmiðlaefni þar sem fatlað fólk segir sjálft frá lífi sínu.
Þetta eru ólík verkefni, en þau snúast öll um það hver fær að vera með, hvaða tækifæri standa fólki til boða og hvort fólk fær að ráða eigin lífi.

Að tala sjálf og láta á sig reyna
Mörg þeirra sem hafa hlotið Múrbrjótinn þekkja hindranirnar af eigin raun og hafa unnið að því að breyta þeim.
Átak, félag fólks með þroskahömlun, hlaut Múrbrjótinn árið 2001 fyrir réttindabaráttu félagsfólks síns. Hópurinn á bak við sjónvarpsþættina Með okkar augum hlaut hann árið 2011 fyrir þáttagerð sem stuðlaði að breyttri ímynd fatlaðs fólks.
Árið 2025 hlaut Jóhanna Brynja Ólafsdóttir viðurkenninguna fyrir baráttu sína fyrir árlegri inntöku fatlaðra nemenda í diplómanám við Háskóla Íslands. Sama ár hlaut Hekla Björk Hólmarsdóttir Múrbrjótinn eftir að hafa fyrst einstaklinga með þroskahömlun tekið við stöðu aðjúnkts við Menntavísindasvið skólans, þar sem hún hafði sjálf lokið diplómanámi.
Þarna er fatlað fólk sjálft í hlutverki baráttufólks, þáttagerðarfólks og kennara. Þau hafa þekkingu og reynslu sem annað fólk þarf að hlusta á og læra af.
Gripurinn úr Ásgarði
Viðurkenningargripurinn er smíðaður á handverkstæðinu Ásgarði, þar sem fólk með þroskahömlun starfar.
Þau hafa hlotið Múrbrjótinn
Hér má kynnast viðurkenningarhöfunum og því sem þau hafa gert til að breyta viðhorfum, ryðja hindrunum úr vegi og auka tækifæri fatlaðs fólks.
2025
Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir
Fyrir að varpa ljósi á líf, reynslu og réttindi fatlaðs fólks og fjölskyldna þeirra með hlaðvarpinu 4. vaktin.
Jóhanna Brynja Ólafsdóttir
Fyrir mikilvæga baráttu sína fyrir því að Háskóli Íslands taki fatlaða nemendur inn í diplómanámið á hverju ári.
Hekla Björk Hólmarsdóttir
Fyrir að hafa, fyrst einstaklinga með þroskahömlun, tekið við stöðu aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, eftir að hún lauk sjálf diplómanáminu við sama skóla.
Afhenti: Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
2024
Magnús Orri Arnarsson
Fyrir að vera frábær fyrirmynd sem nýtir styrkleika sína og hæfileika til að láta drauma sína rætast, með þrautseigju og dugnað að vopni.
Haukur Guðmundsson og Aileen Soffía Svensdóttir
Fyrir framlag sitt með hlaðvarpinu „Mannréttindi fatlaðra“.
Afhenti: Halla Tómasdóttir, forseti Íslands
2023
Dagur Steinn Elvu Ómarsson
Fyrir baráttu gegn hindrunum sem mæta fötluðu fólki, staðalímyndum um fatlað fólk og öráreiti sem fatlað fólk verður fyrir í daglegu lífi.
Listvinnzlan
Fyrir nýjan skapandi vettvang á sviði inngildingar, menningar, menntunar og lista, og fyrir baráttu fyrir lista- og menningarlífi án aðgreiningar.
Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson
Fyrir heimildaleiksýninguna „Fúsi, aldur og fyrri störf“.
Afhenti: Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
2022
Lára Þorsteinsdóttir
Fyrir baráttu fyrir aðgengi að háskólanámi án aðgreiningar.
Finnbogi Örn Rúnarsson
Fyrir baráttu fyrir aðgengi að háskólanámi án aðgreiningar.
Eva Ágústa Aradóttir og Guðlaug Svala Kristjánsdóttir
Fyrir hlaðvarpsþættina „Ráfað um rófið“, sem fjalla um einhverfu frá ýmsum hliðum í daglegu lífi.
Afhenti: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
2021
Þórir Gunnarsson
Fyrir baráttu fyrir aðgengi að listnámi án aðgreiningar og framlag á sviði lista.
Harpa Björnsdóttir
Fyrir baráttu fyrir lista- og menningarlífi án aðgreiningar.
Kristinn Jónasson
Fyrir mikilvægt framtak og öflugt íþróttastarf í þágu fatlaðra barna.
Afhenti: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
2020
Veftímaritið Flóra
Fyrir að skapa vettvang þar sem reynsluheimur fatlaðra kvenna fær umfjöllun og honum er lyft í femínískri umræðu.
Landssamband ungmennafélaga (LUF)
Fyrir framlag í þágu margbreytileikans og jafnra tækifæra fyrir ungt fólk.
Afhenti: Friðrik Sigurðsson, starfsmaður Þroskahjálpar
2019
Tabú, femínísk fötlunarhreyfing
Fyrir jafningjastuðning fatlaðra mæðra við Freyju Haraldsdóttur í máli hennar gegn Barnaverndarstofu.
Ásrún Magnúsdóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter og Olga Sonja Thorarensen
Fyrir verkið „Fegurð í mannlegri sambúð“ sem flutt var á Reykjavík Dance Festival.
Einhverfusamtökin
Fyrir heimildarmyndina „Að sjá hið ósýnilega“ um reynsluheim einhverfra kvenna.
Afhenti: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra
2018
Ruth Jörgensdóttir Rauterberg og Þorpið, frístundamiðstöð á Akranesi
Fyrir framlag í þágu margbreytileikans og jafnra tækifæra.
Geitungarnir, vinnu- og virknitilboð í Hafnarfirði
Fyrir framlag í þágu aukinna tækifæra fatlaðs fólks á vinnumarkaði.
Afhenti: Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar
2017
María Hreiðarsdóttir
Fyrir lífssögu sína sem hún segir í bókinni „Ég lifði í þögninni“.
Afhenti: Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og félagsmálaráðherra
2016
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Fyrir diplómanám í myndlist fyrir fólk með þroskahömlun og framlag í þágu jafnra tækifæra til náms og listsköpunar.
Afhenti: Eliza Jean Reid, forsetafrú
2015
Aðalheiður Sigurðardóttir
Fyrir verkefni sitt „Ég er unik“.
Elín Sveinsdóttir
Fyrir framleiðslu þáttanna Með okkar augum.
Elís Kjartansson
Fyrir innleiðingu nýrra aðferða við rannsókn ofbeldismála gegn fötluðu fólki.
Afhenti: Eygló Harðardóttir, velferðarráðherra
2014
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Guðrún Hjartardóttir
Fyrir fræðsluerindið „Af hverju er barnið mitt ekki úti að éta sand?“
Stígamót
Fyrir það frumkvæði að ráða sérfræðing í málefnum fatlaðs fólks til starfa.
Birna Guðrún Baldursdóttir
Fyrir að starfrækja klúbb fyrir ungmenni á einhverfurófi á Akureyri.
Afhenti: Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra
2013
Hestamannafélagið Hörður
Fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og ungmenna.
GÆS-ar hópurinn
Fyrir nýsköpun í atvinnumálum fatlaðs fólks.
Jarþrúður Þórhallsdóttir
Fyrir að hafa með bók sinni „Önnur skynjun, ólík veröld“ aukið skilning á einhverfu.
Afhenti: Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra
2012
Ríkisútvarpið
Fyrir sýningu sjónvarpsþáttanna Með okkar augum.
Benedikt Bjarnason
Fyrir frumkvöðlastarf að notendastýrðri persónulegri aðstoð.
Gísli Björnsson
Fyrir einarða baráttu fyrir notendastýrðri persónulegri aðstoð.
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður
Fyrir einarða baráttu fyrir notendastýrðri persónulegri aðstoð fyrir fatlað fólk á Íslandi.
Afhenti: Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
2011
Með okkar augum-hópurinn
Fyrir sjónvarpsþáttagerð sem stuðlar að breyttri ímynd fatlaðs fólks í samfélaginu.
Sendiherrar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Fyrir verkefni sem gerir fatlað fólk sjálft að málsvörum samningsins.
Sérfræðingarnir
Fyrir atvinnustefnu sem byggir á styrkleikum einstaklinga.
Afhenti: Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
2010
Æfingastöðin á Háaleitisbraut
Fyrir fjölskyldumiðaða þjónustu sem leggur áherslu á heildræna þjónustu við barnið og fjölskyldu þess og sveigjanleg úrræði.
Dr. Kristín Björnsdóttir, fötlunarfræðingur
Fyrir samvinnurannsóknir sínar með fólki með þroskahömlun.
Afhenti: Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra
2009
Norðlingaskóli í Reykjavík
Fyrir skólastefnu sína um nám fyrir alla nemendur án aðgreiningar.
Mjólkursamsalan á Selfossi
Fyrir atvinnustefnu sem hefur stuðlað að aukinni atvinnuþátttöku fatlaðs fólks.
List án landamæra
Fyrir menningarhátíð sem leiðir saman fatlað og ófatlað listafólk.
Afhenti: Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra
2008
Dr. Guðrún V. Stefánsdóttir
Fyrir doktorsritgerð sína um lífssögur Íslendinga með þroskahömlun.
Guðbrandur Bogason
Fyrir að auðvelda fólki með þroskahömlun ökunám.
Afhenti: Hrannar Björn Arnarsson, í fjarveru Jóhönnu Sigurðardóttur félags- og tryggingamálaráðherra
2007
Kennaraháskóli Íslands
Fyrir starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun.
Afhenti: Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri, í fjarveru menntamálaráðherra
2006
Freyja Haraldsdóttir
Fyrir að stuðla að breyttri ímynd fatlaðs fólks með fyrirlestrum sínum í framhaldsskólum.
ASÍ og Hlutverk, samtök um vinnu og verkþjálfun
Fyrir að hafa unnið ötullega að réttindabaráttu fatlaðs fólks á vinnumarkaði.
Afhenti: Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra
2005
Atvinna með stuðningi: Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi og Félagsþjónustan á Akureyri
Fyrir að vinna markvisst að því að skapa fötluðu fólki atvinnutækifæri með stuðningi.
Afhenti: Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
2004
Íþróttasamband fatlaðra
Fyrir öfluga starfsemi í 25 ár.
Leikskólinn Kjarrið
Fyrir starfsmanna- og uppeldisstefnu sína.
Afhenti: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra
2003
Garðar Sverrisson, formaður ÖBÍ
Fyrir samning um aldurstengingu grunnlífeyris örorkubóta.
Fjölmennt, fullorðinsfræðsla fatlaðra
Fyrir öflugt listastarf.
Landssöfnun Sjónarhóls
Fyrir átak til betra lífs fyrir sérstök börn.
Afhenti: Árni Magnússon, félagsmálaráðherra
2002
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi
Fyrir þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.
Rannveig Traustadóttir, dósent við Háskóla Íslands
Fyrir uppbyggingu fræðastarfs í þágu fatlaðs fólks.
Dóra S. Bjarnason, dósent við Kennaraháskóla Íslands
Fyrir einarða baráttu og rannsóknir í þágu fatlaðs fólks.
Jóhann Ágúst Sigurðsson, prófessor við Háskóla Íslands
Fyrir grundvallarspurningar sínar um siðferði snemmómskoðunar.
Afhenti: Páll Skúlason, háskólarektor
2001
Karl Lúðvíksson
Fyrir uppbyggingu sumardvalar á Löngumýri og störf að kennslumálum.
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra
Fyrir uppbyggingu á fjögurra ára námi fyrir ungmenni með þroskahömlun við almenna framhaldsskóla.
Átak, félag fólks með þroskahömlun
Fyrir baráttu sína fyrir réttindum félagsfólks.
Afhenti: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri
2000
Akureyrarbær
Fyrir samþættingu í þjónustu við fatlað fólk.
Nemendafélag Borgarholtsskóla
Fyrir að leiða saman fatlaða og ófatlaða nemendur í félagsstarfi.
Morgunblaðið
Fyrir góða umfjöllun um málefni fatlaðs fólks og auðlesna síðu.
Afhenti: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands
1999
Fyrsta árið sem Múrbrjóturinn var veittur fyrir fjölbreytt starf. Fjórir aðilar hlutu hann fyrir starf að búsetumálum, skólagöngu, tónlist og þjónustu við fötluð börn.
Soffía Lárusdóttir, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi
Fyrir stefnu í búsetumálum fatlaðs fólks.
Ragnar Gíslason, skólastjóri Foldaskóla
Fyrir að fatlaðir og ófatlaðir nemendur stunduðu nám saman.
Valgerður Jónsdóttir, músíkþerapisti, Tónstofu Valgerðar
Fyrir brautryðjendastarf í tónlistarkennslu fatlaðs fólks.
Soffía Pálsdóttir, æskulýðsfulltrúi ÍTR
Fyrir starf sitt og starfsfólks ÍTR í þágu fatlaðra barna.
Afhenti: Björn Bjarnason, menntamálaráðherra
Heimild: Morgunblaðið, 7. desember 1999, bls. 12, Dagur, 7. desember 1999, bls. 2
1998
Viðurkenning fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki
Eðalfiskur í Borgarnesi
Fyrir að skapa fötluðu fólki atvinnutækifæri. Leitað var til svæðisstjórna og sveitarfélaga um tilnefningar fyrirtækja og stofnana sem hefðu skapað störf fyrir fatlað fólk.
1997
Viðurkenning fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki
Hrafnista í Reykjavík
Fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki. Hrafnista var valin úr hópi fimm tilnefndra vinnustaða.
Heimild: DV, 8. desember 1997, bls. 49
1996
Viðurkenning fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki
Kaupfélag Eyfirðinga (KEA)
Fyrir starfsmannastefnu þar sem kveðið var á um að skipuleggja störf þannig að fatlað fólk gæti einnig sinnt þeim. Dómnefnd taldi þetta nýjung hér á landi sem önnur fyrirtæki gætu tekið sér til fyrirmyndar.
1995
Viðurkenning fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki
Þormóður rammi á Siglufirði
Fyrir frumkvæði að ráðningu fatlaðs fólks. Fyrirtækið leitaði að störfum á ólíkum sviðum starfseminnar og lagði áherslu á að fatlað og ófatlað starfsfólk ynni saman. Laun og kjör voru samkvæmt kjarasamningum. Þá störfuðu sex fatlaðir einstaklingar hjá fyrirtækinu.
Heimild: Dagur, 5. desember 1995, bls. 3
1994
Viðurkenning fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki
Nói Síríus
Fyrir atvinnustefnu sem þótti til fyrirmyndar gagnvart fötluðu fólki. Fyrirtækið var valið úr hópi fimm fyrirtækja sem uppfylltu viðmið dómnefndar. Viðurkenningin var innrammað skjal og blýantsteikning eftir Róbert Jónsson á Egilsstöðum.
Afhenti: Rannveig Guðmundsdóttir, félagsmálaráðherra, og Ína Valsdóttir, formaður Átaks
1993
Viðurkenning fyrir atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki
Hagkaup
Fyrsta viðurkenningin. Við valið var meðal annars horft til þess að fatlað starfsfólk nyti sömu launakjara og annað starfsfólk, ætti aðild að verkalýðsfélagi og greiddi í lífeyrissjóð. Viðurkenningin var skrautritað skjal og keramikvasi eftir Ólaf Þ. Ólafsson frá Selfossi.
Afhenti: Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra