Þroskahjálp merki
EN

Tímaritið Þroskahjálp

Hvernig viljum við búa, læra, vinna og ráða eigin lífi?

Í Tímaritinu Þroskahjálp var fjallað um þessar spurningar í áratugi. Þar birtust nýjar hugmyndir um þjónustu, rannsóknir, reynsla fólks og kröfur um breytingar. Útgáfu tímaritsins er lokið, en tölublöðin varðveita sögu réttindabaráttunnar og umræðu sem á enn erindi við okkur.

Skoða tölublöðin
Forsíða fyrsta tölublaðs Tímaritsins Þroskahjálpar, 1978

Orðin í gömlu blöðunum

Í eldri tölublöðum eru orð um fatlað fólk sem við notum ekki lengur. Sum standa á forsíðunum. Orð eins og „“ og „“ tilheyrðu orðfæri sem flokkaði fólk fyrst og fremst eftir greind, getu og læknisfræðilegum skilgreiningum. Þau voru líka notuð af fólki sem barðist fyrir betri kjörum og réttindum.

En orð breyta um merkingu og vægi. Sum þessara orða hafa verið notuð til að niðurlægja fólk eða lýsa einhverju sem lélegu, heimskulegu eða óboðlegu. Þau særa, líka þegar þau birtast í gömlu blaði.

Við birtum tölublöðin óbreytt sem heimildir um söguna. Orðalagið sýnir bæði hvernig var hugsað og talað um fatlað fólk og hvað hefur breyst. Það lýsir ekki því hvernig við viljum tala um fólk í dag.

Lesa meira um orð og orðanotkun →

Þekking sem fólk getur notað

Tímaritið hóf göngu sína árið 1978. Það varð vettvangur fyrir umræðu um málefni fatlaðs fólks, hér á landi og erlendis.

Þar var meðal annars fjallað um stuðning við fjölskyldur, skóla án aðgreiningar, atvinnuþátttöku og rétt fólks til að tala sínu máli sjálf. Einnig um að flytja af stofnun og hvað þurfi til þess að húsnæði verði að heimili.

Stuttar, aðgengilegar greinar kynntu nýja þekkingu fyrir fötluðu fólki, aðstandendum og fagfólki. Þannig gátu hugmyndir og reynsla úr rannsóknum og starfi annars staðar nýst í íslenskum veruleika.

Ung kona situr við eldhúsborð í kennslueldhúsi. Myndatexti: Við getum lært. Úr 1. tbl. 1978.
Bekkur í Hlíðaskóla. Myndatexti: Hvar er nemandinn með sérþarfir í þessum bekk? Hulda Magnúsdóttir við vinnu sína. Úr 1. tbl. 1978.

Pláss fyrir spurningar og ágreining

Þjónusta getur verið til staðar án þess að fólk fái ráðið miklu um líf sitt. Fyrirkomulag sem þykir sjálfsagt í dag getur þurft að breytast á morgun.

Tímaritið gaf slíkri umræðu pláss. Þar birtust ólíkar hugmyndir um hvernig stuðningi skyldi háttað, gagnrýni á ríkjandi fyrirkomulag og tillögur að öðrum leiðum.

Stúlka með fléttur situr við vinnu sína. Myndatexti: Við getum unnið. Úr 1. tbl. 1978.

Upplýsingar á máli sem fólk skilur

Í tímaritinu birtist einnig útdráttur úr efninu á auðlesnu máli.

Upplýsingar um réttindi og þjónustu þurfa að vera skiljanlegar þeim sem þær varða. Það á líka við um umræðu um breytingar: fatlað fólk þarf að geta kynnt sér hugmyndirnar, myndað sér skoðun og tekið þátt.

Saga sem má fletta

Eldri tölublöð sýna hvað fólk var að berjast fyrir, hvaða leiðir voru reyndar og hvað mætti mótstöðu. Þar má líka rekast á spurningar sem við erum enn að glíma við.

Barn heldur á bolta. Myndatexti: Við getum stundað íþróttir. Úr 1. tbl. 1978.

Hér getur þú skoðað tímaritið í gegnum árin, öll 150 tölublöðin frá 1978 til 2020. Smelltu á forsíðu til að opna tölublaðið (PDF).

Umræðan heldur áfram

Á upplýsingatorginu birtast fréttir, greinar og upplýsingar um réttindi fatlaðs fólks. Þar getur þú fylgst með málunum sem eru til umræðu núna.

Á upplýsingatorgið →