STOLTGANGAN 2016

STOLTGANGAN 2016 Við göngum á ólíkan hátt - en öll í sömu átt Í Stoltgöngunni göngum við saman hönd í hönd og berum höfuðið hátt. Gangan verður laugardaginn 3. september og verður lagt af stað frá Austurvelli klukkan 11:30 (hálf tólf) og gengið að Norræna Húsinu.

STOLTGANGAN 2016

Við göngum á ólíkan hátt - en öll í sömu átt

Í Stoltgöngunni göngum við saman hönd í hönd og berum höfuðið hátt.

Gangan verður laugardaginn 3. september og verður lagt af stað frá Austurvelli klukkan 11:30 (hálf tólf) og gengið að Norræna Húsinu.

Gleðin verður við völd. Saman erum við sterk, stolt og sýnileg!

Eftir gönguna verður margt skemmtilegt um að vera við Norræna húsið á Fundi fólksins.

Við hvetjum alla til að fjölmenna í gönguna og fagna fjölbreytileikanum.

Sýnum samstöðu og okkur sjálf, rúllum og göngum saman og látum raddir okkar heyrast!