Sigrún Huld útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ

Sigrún Huld Hrafns­dótt­ir við viðurkenningarathöfnina. Ljósmynd mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sigrún Huld Hrafns­dótt­ir við viðurkenningarathöfnina. Ljósmynd mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigrún Huld Hrafnsdóttir var útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ á hófi Íþróttamanns ársins 4. janúar 2024.

Á heimasíðu ÍSÍ segir: 

Sigrún Huld er fædd 12. janúar 1970.

Sigrún Huld er ein sigursælasta íþróttakona Íslands frá upphafi. Hún hóf að æfa sund með Íþróttafélaginu Ösp í Reykjavík árið 1982. Hæfileikar Sigrúnar í sundlauginni komu snemma í ljós og hún varð fyrst Íslendinga til að vinna til verðlauna á stórmóti í flokki þroskahamlaðra. Hún var sunddrottning HM árið 1989 sem haldið var í Svíþjóð þar sem hún vann til fimm gullverðlauna.

Á Ólympíumótinu í Madríd árið 1992 vann Sigrún til níu gullverðlauna, tvennra silfurverðlauna og sannaði þar enn frekar yfirburði sína í sundi þroskahamlaðra kvenna. Á heimsmeistaramótinu árið 1994 á Möltu var í fyrsta skipti sameiginlegt mót í flokkum þroskahamlaðra, hreyfihamlaðra og blindra. Þar vann Sigrún til sex verðlauna, þar af fern gullverðlaun. Á Ólympíumótinu í Atlanta árið 1996 vann hún svo ein bronsverðlaun, en þá hafði keppnisgreinum verið fækkað mikið í hverjum flokki vegna skipulagsbreytinga. Það var hennar síðasta stórmót. 

Sigrún Huld setti fjölda heimsmeta á íþróttaferlinum, var valin íþróttamaður Reykjavíkur árið 1992 og það sama ári var hún maður ársins að mati hlustenda Rásar 2 og Bylgjunnar. Þá var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2015.

Þess má einnig geta að eftir að Sigrún lagði sundhettuna á hilluna sneri hún sér að myndlist og var einn listamanna sem átti listaverk í almanaki Þroskahjálpar í fyrra. Sumsé afrekskona á ýmsum sviðum, og sendir Þroskahjálp Sigrúnu Huld bestu hamingjuóskir í tilefni þessa heiðurs!