Sæti við borðið — ferð um landið

Þroskahjálp ásamt Fjölmennt og Átaki — félags fólks með þroskahömlun, munu á næstu vikum ferðast um landið með fundarherferðina Sæti við borðið.

Fyrsti fundurinn er á þriðjudaginn næstkomandi, 5. september, á Selfossi kl. 17-19.

Fundarherferðin Sæti við borðið fjallar um stuðning og fræðslu fyrir fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir á landsbyggðinni til aukinnar þátttöku og virkni í notendaráðum.

Í öllum sveitarfélögum/þjónustusvæðum  eiga að vera starfandi notendaráð þar sem fötluðu fólki er gert að hafa áhrif um málefni sem skipta máli í lífi þess. Tilgangurinn er að auka áhrif fatlaðs fólks á skipulag og framkvæmd þjónustu  og hagsmunamál í sveitarfélaginu.

Með því að gefa fötluðu fólki tækifæri til að vera í notendaráði og skila tillögum um breytingar eru meiri möguleikar á því að sveitarfélagið mæti betur þjónustuþörfum hvers og eins og fái mikilvægar upplýsingar til að gera betur. Þetta getur haft jákvæð áhrif á allt samfélagið og kveikir aðra hugsun um fatlað fólk og þá sem þurfa á aðstoð að halda í lífinu.

Þroskahjálp, Fjölmennt og Átak hvetja fólk með þroskahömlun sérstaklega til að mæta á fundina og læra um starfsemi notendaráðs og hvernig þau geta haft áhrif á skipulag og framkvæmd þjónustu í sínu nærsamfélagi. Félögin hvetja einnig starfsfólk sveitarfélaga til að mæta og óska eftir samstarfi við alla sem að málinu koma, t.d. símenntunarstöðvar, framhaldsskóla o.s.frv.

Hér má sjá staðsetningar og dagsetningar fundanna:

5. september — Selfoss
Staðsetning: Hótel Selfoss
Tímasetning: kl. 17-19

7. september — Reykjanesbær
Staðsetning: Duus safnahús
Tímasetning: kl. 17-19

12. september — Vestmannaeyjar
Staðsetning: Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja
Tímasetning: kl. 17-19

14. september — Borgarnes
Staðsetning: Hótel Hamar
Tímasetning: kl. 17-19

26. september — Ísafjörður
Staðsetning: Edinborgarhúsið, Bryggjusalur
Tímasetning: kl. 15-17
Fundinum var frestað vegna veðurs.
Ný tímasetning verður auglýst síðar.

28. september — Sauðárkrókur
Staðsetning: Grána Bistro
Tímasetning: kl. 17-19

2. október — Egilsstaðir
Staðsetning: Sláturhúsið - menningarsetur
Tímasetning: kl. 16-18.

Akureyri
Óstaðfest tímasetning, upplýsingar koma síðar.

Húsavík
Óstaðfest tímasetning, upplýsingar koma síðar.