Með okkar augum tilnefnt til Edduverðlauna í fimmta sinn.

Hinir sívinsælu þættir "Með okkar augum" þar sem dagskrárgerðarfólk með þroskahömlun varpar ljósi á hina ýmsu þætti samfélagsins á skemmtilegan og einstakan hátt, eru tilnefndir til Edduverðlaunanna fimmta árið í röð í flokki menningarþátta. Og ekki bara það heldur er Andri Freyr tilnefndur sem sjónvarpsmaður ársins. 

Þættirnir hafa hlotið margvíslegar viðurkenningar og notið mikilla vinsælda.

Eddan verður afhent sunnudaginn 26. febrúar nk.