Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024 – 2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024 - 2028

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024 – 2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024 - 2028

   11. október 2023

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undigengist, sem og á heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er í gangi af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans.

Í 4. gr. samningsins, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingarsegir að aðildarríki samningsins skuldbindi sig til „að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð.

Stefnumótun og aðgerðaáætlun af því tagi sem hér er til umsagnar er mjög mikilvægur þáttur í að innleiða samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks.

Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar kemur fram að félags- og vinnumarkaðsráðherra hyggist leggja fram tillögu til þingsályktunar um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks í nóvember mánuði nk. Þar segir:

Tillaga til þingsályktunar um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks.
Ályktunin felur í sér stefnu og aðgerðaáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til ársins 2030. Verkefni sem áður voru skilgreind í framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks verða felld inn í landsáætlun, auk aðgerða sem unnar hafa verið af vinnuhópum undir verkefnastjórn um gerð landsáætlunar og innleiðingu samningsins. Nóvember.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er, að mati Landssamtakanna Þroskahjálpar, augljóslega nauðsynlegt að þær áætlanir og aðgerðir sem er að finna í þeirri tillögu til þingsályktunar, sem hér er til umsagnar, taki fullt tillit þeirrar stefnu og aðgerða sem verða í tillögu til þingsályktunar um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Samtökin skora því á umhverfis- og samgöngunefnd og Alþingi að kalla eftir upplýsingum frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og innviðaráðuneytinu um hvað ráðuneytinu hafi gert til að tryggja það.

Sveitarfélög gegna mjög mikilvægu hlutverki samkvæmt lögum við að veita fötluðu fólki þjónustu, sem er mjög oft algjör forsenda þess að það hafi raunhæf tækifæri til að njóta margvíslegra mannréttinda sem eru sérstaklega áréttuð í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem íslenska ríkið fullgilti, eins og fyrr sagði, árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja hér á landi. Sú skuldbinding nær skýrt og skilyrðislaust til sveitarfélaga.

Í 1. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, segir:      

Við framkvæmd laga þessara skal framfylgt þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Framkvæmd þessara tveggja laga er fyrst og fremst á verksviði og ábyrgð sveitarfélaga. Þá eru grunnskólar og leikskólar reknir af sveitarfélögunum en þeir gegna lykilhlutverki hvað varðar tækifæri fatlaðra barna til menntunar og félagslegrar þátttöku, án mismununar og aðgreiningar, eins og mælt er fyrir um í lögum og er meginþáttur í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.

Þroskahjálp vill einnig árétta þær miklu efasemdir sem samtökin hafa ítrekað og með skýrum hætti komið á framfæri við hlutaðeigandi ráðuneyti og Alþingi um að rétt hafi verið falla frá kröfu í lögum um lágmarksfjölda fólks á hverju þjónustusvæði fyrir fatlað fólk, eins og gert var með lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Í þessu sambandi benda samtökin á að mjög vandséð er að fámenn sveitarfélög hafi burði og aðstæður til að bjóða upp á margbreytilega og stundum mjög sérhæfða þjónustu, sem þeim ber að gera samkvæmt lögunum. Þá er fullt tilefni til að hafa af því áhyggjur að það sé erfitt fyrir fámenn sveitarfélög að hafa starfsfólk í þjónustu sinni sem býr yfir fullnægjandi og sérhæfðri menntun og þekkingu sem nauðsynleg er og krafa er gerð um í lögum og reglum varðandi mannréttindi fatlaðs fólks og þjónustu sem það á rétt á og þarf að fá til að hafa raunhæf tækifæri til að njóta þeirra mannréttinda, til jafns við aðra íbúa sveitarfélaga.

Með því að falla frá kröfu í lögum um þjónustusvæði með lágmarksfjölda íbúa varð einnig enn örðugra fyrir ríkið að standa við þá lagalegu skyldu sína að tryggja jafnræði og samræmi milli búsetusvæða fatlaðs fólks hvað varðar aðgang að lögbundinni þjónustu. Það er mjög brýnt viðfangsefni sem verður enn þá erfiðara viðfangs með fleiri „þjónustueiningum“. Í þessu sambandi verður að líta til þess að það er alvarlegt brot gegn mannréttindum ef íbúum landsins er mismunað á grundvelli búsetu hvað varðar þjónustu þar sem í húfi eru mjög miklir hagsmunir og réttindi þeirra sem í hlut eiga og mjög oft er lögbundin þjónusta við fatlað fólk forsenda þess að þeir sem á henni þurfa að halda fái notið mikilsverðra mannréttinda í skilningi laga, samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks og annarra fjölþjóðlegra mannréttindasamninga sem íslenska ríkið hefur undirgengist.

Einnig verður í þessu sambandi að líta til þess að ósamræmi og/eða ójafnræði á milli búsetusvæða að þessu leyti vegur mjög alvarlega að tækifærum fatlaðs fólks til að ráða búsetu sinni og flytjast á milli svæða og mest að tækifærum þeirra sem hafa miklar þjónustuþarfir vegna fötlunar sinnar og eru því mest háðir þjónustunni. Rétturinn til að ráða búsetu sinni er mannréttindi í skilningi stjórnarskrár og mannréttindasamninga sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja. Eftir því sem „þjónustueiningarnar“ verða fleiri eykst hætta á ósamræmi milli þeirra eðli máls samkvæmt.

Að lokum vilja Landssamtökin Þroskahjálp ítreka enn áskorun sína til stjórnvalda ríkis og sveitarfélaga um að leiða án tafar til lykta langvarandi togstreitu sína varðandi kostnað af að tryggja fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri til sjálfstæðs lífs og þátttöku í samfélaginu, sem kveðið er á um stjórnarskrá, lögum og fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem Ísland hefur undigengist og þykja sjálfsögð þegar í hlut eiga aðrir íbúar í landinu og í sveitarfélögunum. Þessi langvarandi togstreita og sífelld opinber umræða henni tengd er mjög oft meiðandi og niðurlægjandi fyrir allt fatlað fólk og vegur að sjálfsmynd þess og ímynd og ýtir undir fordóma gagnvart fötluðu fólki og stuðlar að aukinni aðgreiningu þess.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Nálgast má þingsályktunartillöguna sem umsögnin á við hér