Orð og orðanotkun
Hvernig tölum við um fólk, og hver fær að tala?
Orðin sem við notum geta lýst fólki, en þau geta líka dæmt, dregið úr væntingum og gert lítið úr fólki. Hjá Þroskahjálp þurfum við því að skoða bæði hvernig við tölum um fatlað fólk og hvort við hlustum þegar þau tala sjálf.
Það á líka við um okkar eigin sögu. Í eldri útgáfum samtakanna eru orð sem við myndum ekki nota í dag.
Þegar orð um fólk verða að skammaryrðum
Orð eins og „Úrelt og meiðandi orð úr læknisfræðilegri flokkun sem einblíndi á skort. Í dag er það notað sem skammaryrði. Við segjum „fólk með þroskahömlun“. Um orð og orðanotkun“ og „Úrelt og meiðandi orð úr læknisfræðilegri flokkun sem einblíndi á skort. Í dag er það notað sem skammaryrði. Við segjum „fólk með þroskahömlun“. Um orð og orðanotkun“ voru notuð í lögum, þjónustu, faglegri umræðu og daglegu tali. Þau tilheyrðu orðfæri sem lagði áherslu á að greina og flokka fólk eftir því sem fólk var talið skorta eða geta ekki gert.
Sum þessara orða hafa síðan verið notuð til að lýsa lélegum vinnubrögðum, heimskulegri ákvörðun eða hegðun sem mælanda þykir óboðleg. Þá er orð um hóp fólks orðið að skammaryrði.
Fólk sem notar orðið hugsar kannski ekki um fatlað fólk. Tengingin er samt þarna: heiti á fólki er notað til að segja að eitthvað sé slæmt eða minna virði. Það særir þau sem heyra orð um sig og sína notuð þannig.
Frá greiningu til réttinda
Orðin eiga uppruna sinn á tíma þegar fötlun var skilgreind út frá læknisfræðilegri greiningu. Sú nálgun einblíndi á mismun og skort og flokkaði fólk eftir því sem talið var vanta. Úr sama orðfæri koma Orðið var áður notað um fólk með þroskahömlun, í læknisfræðilegri flokkun. Í dag er það skammaryrði: fötlun er gerð að mælikvarða á það sem er heimskulegt og einskis virði. Það særir fatlað fólk. Um orð og orðanotkun, Orðið var áður notað um fólk með þroskahömlun, í læknisfræðilegri flokkun. Í dag er það skammaryrði: fötlun er gerð að mælikvarða á það sem er heimskulegt og einskis virði. Það særir fatlað fólk. Um orð og orðanotkun og örviti. Þau voru notuð um fólk og eru nú notuð til að niðurlægja.
Samfélagsleg nálgun skilgreinir fötlun út frá manngerðum hindrunum í samfélaginu. Fatlað fólk er hluti af fjölbreytileika mannflórunnar og á rétt á fullri þátttöku á öllum sviðum lífsins.
Við erum alltaf að hlaupa undan orðunum
Nýtt orð getur hjálpað okkur að tala um fólk af meiri virðingu. En það er engin trygging fyrir því að orðið haldi þeirri merkingu. Ef viðhorfin breytast ekki getur nýja orðið tekið við fordómunum sem fylgdu því gamla.
Þetta þekkjum við hjá Þroskahjálp. Stundum þarf ný orð. Stundum tekur fólk orð í sátt og gefur þeim nýtt líf. Önnur orð missa aflið eða fara að standa fyrir eitthvað allt annað en þeim var ætlað.
Við getum því ekki búið til orðalista í eitt skipti fyrir öll og talið málið leyst. Við þurfum að hlusta, fylgjast með og vera tilbúin að endurskoða eigin orð.
Að tala fyrir börnin sín
Þroskahjálp varð til árið 1976 þegar félög sameinuðust um réttindi fatlaðs fólks. Foreldrar fatlaðra barna voru meðal þeirra sem mótuðu samtökin og baráttu þeirra.
Þau kröfðust þess að börnin fengju menntun, stuðning og tækifæri til að taka þátt í samfélaginu. Þau þrýstu á um breytingar á lögum, þjónustu og viðhorfum og að ríki og sveitarfélög axluðu ábyrgð.
Foreldrarnir töluðu máli barna sinna í samfélagi þar sem fatlað fólk fékk sjaldan áheyrn og hafði lítil áhrif á ákvarðanir um eigið líf. Sú barátta breytti miklu. En foreldrar og fagfólk geta ekki ein sagt til um hvað fólk vill.


Að tala sjálf og hafa áhrif
Fatlað fólk hefur lengi þurft að berjast fyrir því að eigin óskir og reynsla séu teknar alvarlega. Stofnun Átaks, félags fólks með þroskahömlun, árið 1993 er einn áfangi í þeirri baráttu. Félagið varð til upp úr umræðuhópum sem Þroskahjálp hafði komið á fót.
Að tala sjálf getur þýtt að segja frá reynslu sinni á fundi eða taka þátt í stefnumótun. Það getur líka verið að velja hvar og með hverjum fólk býr, ákveða hvernig stuðningi er háttað eða segja nei.
Sumt fólk þarf stuðning til að tjá vilja sinn. Sum nota aðrar leiðir en talað mál. Það dregur ekki úr rétti þeirra til að ráða og hafa áhrif.
Valdefling þarf að sjást í því sem gerist næst. Fær fólk upplýsingar sem þau skilja? Tíma til að mynda sér skoðun? Stuðning til að tjá hana? Hefur það sem fólk segir áhrif á ákvörðunina?
„Fyrir fatlað fólk, sem berst stöðugt fyrir viðurkenningu á rétti sínum til að vera fullgild í samfélaginu, er það einmitt orðræða sem einblínir á skort og aðgreiningu sem er mest meiðandi.“
Hvernig tölum við í dag?
Við notum meðal annars orðin „fatlað fólk“ og „fólk með þroskahömlun“. Við nefnum fötlun þegar hún skiptir máli fyrir umræðuna og reynum að lýsa aðstæðum skýrt.
Við hlustum líka á hvernig fólk vill að talað sé um sig. Fatlað fólk er ekki á einu máli um orð, frekar en annað fólk. Virðing felst meðal annars í því að gera ráð fyrir þeim mun.
Við getum leiðrétt orðalag án þess að gera lítið úr þeim sem notaði það. Markmiðið er að fólk skilji hvað orðin gera og geti valið þau af meiri nærgætni.
Hvers vegna birtum við gömlu orðin?
Í safni Tímaritsins Þroskahjálpar eru tölublöðin birt eins og þau komu út. Þar má finna úrelt og særandi orð, jafnvel í textum sem voru skrifaðir til að krefjast réttinda og betri lífsskilyrða.
Að varðveita þessi gögn þýðir ekki að við tökum undir allt sem þar stendur. Þau sýna hvað fólk var að berjast fyrir, en líka hvaða hugmyndir og takmarkanir fylgdu umræðunni.
Við gefum orðunum samhengi svo lesendur geti skoðað söguna með opnum augum. Það á líka að vera hægt að spyrja okkur um orðalagið og gagnrýna það.
Segðu okkur frá
Rakstu á orðalag hjá okkur sem særir, útilokar eða er óskýrt? Eða viltu ræða hvernig hægt sé að tala um fötlun og réttindi?
Við viljum heyra það. Við getum líka þurft að breyta því hvernig við orðum hlutina.