SAMNINGUR UM RÉTTINDI FATLAÐS FÓLKS , liður X

Ríkin, sem eiga aðild að samningi þessum,

...sem eru þess fullviss að fjölskyldan er hin eðlilega undirstöðueining samfélagsins og að samfélaginu og ríkinu beri skylda til að vernda hana og enn fremur að fötluðu fólki og fjölskyldum þess beri nauðsynleg vernd og aðstoð til þess að fjölskyldum verði gert kleift að leggja sitt af mörkum til þess að fatlað fólk geti notið réttinda sinna til fulls og jafns við aðra,