Þroskahjálp merki
EN

Við bönkum ekki í ár!

Almanak Þroskahjálpar fyrir árið 2021 er komið út! Vegna COVID-19 munu sölumenn ekki ganga í hús til að selja almanakið í ár. Því biðjum við stuðningsfólk mannréttinda fatlaðs fólks og velunnara Þroskahjálpar að kaupa eintak í vefverslun okkar, í völdum verslunum eða með því að greiða greiðsluseðil sem birtist í ákveðnum póstnúmerum.

Birt þann:

06.10.2020

Við bönkum ekki í ár!

Almanak Þroskahjálpar fyrir árið 2021 er komið út! Vegna COVID-19 munu sölumenn ekki ganga í hús til að selja almanakið í ár. Því biðjum við stuðningsfólk mannréttinda fatlaðs fólks og velunnara Þroskahjálpar að kaupa eintak í vefverslun okkar, í völdum verslunum eða með því að greiða greiðsluseðil sem birtist í ákveðnum póstnúmerum.

Þegar þú kaupir almanakið hjálpar þú okkur að standa vörð um réttindi og tækifæri fatlaðs fólks til virkrar þátttöku í samfélaginu en almanakið er líka happdrættismiði! Á því er númer sem tryggir þér miða í listaverkapotti Þroskahjálpar, en þangað hafa fjölmarga listamenn gefið bæði listaverk og eftirprent af verkum sínum.

Skoðaðu vefverslun okkar með því að smella hér!

Í ár prýða hin skemmtilegu útsaumsverk Loja Höskuldssonar almanakið.

Um Loja Höskuldsson (1987)

Frá útskrift úr Listaháskóla Íslands hefur Loji leitast við, í myndlist sinni, að kanna hefðbundnar og nýjar leiðir í útsaumi, tækni sem hann hefur þróað útfrá mömmu sinni en hún er atvinnusaumakona og útsaumssnillingur. Í útsaumi hans er viðfangsefnið fengið úr hversdagsleikanum; sokkar sem þorna á þvottasnúrum, handklæðaofn í bændagistingu, plastpokar í illa hirtum runnum við þunga umferðagötu, plöntur, ávextir og hlutir sem finnast á heimilum.

Loji hefur verið að sýna víðsvegar bæði á Íslandi og erlendis samsýningar og einkasýningar. Framundan er sýning í Safnasafninu á Svalbarðsströnd sumarið 2021.

Frekari upplýsingar um verk hans veitir Hverfisgallerí.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt