Landssamtökin Þroskahjálp reka Daðahús, heilsárshús að Akurgerði 10 á Flúðum.
Húsið hefur verið mikið nýtt á sumrin en samtökin vilja sérstaklega vekja athygli á vetrarleigu, þar sem dásamlegt er að dvelja á Flúðum allan ársins hring. Hægt er að leigja húsið til lengri og skemmri tíma yfir vetrarmánuðina.
Húsið er með mjög góðu aðgengi, heitum potti með aðgengi, palli, grilli og svefnplássi fyrir 7 manns auk lausra dýna. Öll helstu hjálpartæki eru til staðar. Þá er internet og AppleTV á staðnum.
Frekari upplýsingar um Daðahús og myndir má sjá á heimasíðu samtakanna.
Hafið samband á throskahjalp@throskahjalp.is eða í síma 588 9390 fyrir frekari upplýsingar.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
