Réttindabarátta fatlaðs fólks í 47 ár – Grein formanns í tilefni afmælis Þroskahjálpar
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar, ritar grein í tilefni 47 ára afmælis Þroskahjálpar
Birt þann:
16.10.2023

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar, ritar grein í tilefni 47 ára afmælis Þroskahjálpar
Birt þann:
16.10.2023

Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og öðrum alþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Framsækni, staðfesta, þrautseigja og baráttugleði eru leiðarljós í starfsemi og stefnu samtakanna. Við leggjum mikla áherslu á að fatlað fólk komi sjálft að þeim ákvörðunum sem það varðar og að sjónarmið þess og vilji séu leiðandi í stefnu og baráttu okkar. Hér eru nokkur mikilvæg verkefni og áherslumál samtakanna.
Við höfum unnið að mörgum mikilvægum verkefnum sem hafa það að markmiði að efla og bæta samráð við fatlað fólk, m.a. með því að búa til fræðsluefni fyrir starfsfólk sveitarfélaga og fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir um samráð og starfsemi notendaráða sveitarféalga.
Nú í haust hófum við, í samstarfi við Átak, félag fólks með þroskahömlun og Fjölmennt, fundaherferðina Sæti við borðið, sem er verkefni til stuðnings og fræðslu fyrir fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir sem hefur áhuga á að sitja í notendaráðum á landsbyggðinni.
Það er bráðnauðsynlegt að tryggja raunverulegt og mikið samráð við fatlað fólk á landinu öllu og sérstaklega að tryggja að fatlað fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir fái viðeigandi stuðning og tækifæri til að segja skoðun sína og hafa áhrif.
Margt hefur áunnist í réttindamálum fatlaðs fólks en mjög margt er ógert. Þrátt fyrir miklar breytingar á undanförnum árum og vonir um að gerð landsáætlunar um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem stjórnvöld vinna nú að undir forystu félags- og vinnumarkaðsráðherra, hafi enn meiri umbætur í för með sér, er ekkert sjálfsagt. Mannréttindi fólks og ekki síst fatlaðs fólks eru brothætt og því miður eru ýmsar blikur á lofti um að aldrei hafi verið mikilvægara en einmitt nú að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur í baráttunni og sækja fram – Sókn er besta vörnin!
Landsþing Landsamtakanna Þroskahjálpar verður haldið laugardaginn 21. okt. nk á Hotel Reykjavík Grand. Eftir hádegi (kl. 13-16:30) munum við halda málþing um húsnæðismál fatlaðs fólks undir yfirskriftinni Þak yfir höfuðið. Hvetjum við öll sem láta sig þetta mikilvæga réttindamál fatlaðs fólks varða að mæta á málþingið því umræðuefnið er svo sannarlega þarft og mikilvægt.
Á afmælisdaginn sendir Þroskahjálp sérstakar þakkir til allra þeirra fjölmörgu einstaklinga sem stutt hafa fjárhagslega við samtökin í gegnum árin með því að kaupa listaverkaalmanak eða með beinum fjárstuðningi. Stuðningur almennings er grundvöllur allra þeirra verkefna sem Þroskahjálp vinnur að.
Í tilefni dagsins er hafin forsala á almanakinu okkar inn á heimasíðu samtakanna.
Án ykkar væri miklu minna bit í baráttu okkar og því viljum við nota þetta tækifæri til að þakka innilega fyrir okkur.
Unnur Helga Óttarsdóttir,
formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Greinin birtist fyrst á Vísi.is

Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Höfundar: Alma Ýr Ingólfsdóttir - formaður ÖBÍ réttindasamtaka Guðmundur Ármann Pétursson - formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar Stefanía Hulda Marteinsdóttir - framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna Vigdís Gunnarsdóttir - stjórnarmaður Einhverfusamtakanna

Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og verkefnastjóri í málefnum barna hjá Þroskahjálp skrifa um skóla án aðgreiningar: Ef við samþykkjum mannréttindi fatlaðs fólks í orði, en höfnum þeim í framkvæmd þegar á reynir, þá er hætt við að réttindin verði innantóm.

Í umræðunni um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er umræðan um kostnað og hver á að borga ráðandi. En spurningin ætti auðvitað frekar að vera: Hvers vegna hefur fatlað fólk þurft að bíða svona lengi eftir því að njóta sömu réttinda og aðrir?