Þroskahjálp merki
EN

Þekkir þú múrbrjót?

Múrbrjóturinn er viðurkenning sem Landssamtökin Þroskahjálp veita einstaklingi eða einstaklingum, félagi eða verkefni sem að mati samtakanna hefur brotið niður múra í réttindamálum fatlaðs fólks og viðhorfum til þess og stuðlað þannig að því að fatlað fólk verði fullgildir þátttakendur í samfélaginu og hafi tækifæri til að lifa eðlilegu lífi til jafns við aðra.

Birt þann:

29.10.2019

Þekkir þú múrbrjót?

*AUÐLESINN TEXTI ER NEÐST*

Múrbrjóturinn er viðurkenning sem Landssamtökin Þroskahjálp veita einstaklingi eða einstaklingum, félagi eða verkefni sem að mati samtakanna hefur brotið niður múra í réttindamálum fatlaðs fólks og viðhorfum til þess og stuðlað þannig að því að fatlað fólk verði fullgildir þátttakendur í samfélaginu og hafi tækifæri til að lifa eðlilegu lífi til jafns við aðra.

Óskað eftir ábendingum og tillögum um einstaklinga, félög eða verkefni sem fólki finnst vel að því komin að hljóta viðurkenninguna. Ábendingar og tillögur skulu sendar á throskahjalp@throskahjalp.is eigi síðar en 13. nóvember.

Stjórn samtakanna velur verðlaunahafann og fær hann Múrbrjótinn afhentan í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks.

HÉR má sjá lista yfir fyrri verðlaunahafa.

AUÐLESIÐ

  • Þroskahjálp velur á hverju ári manneskju, félag eða verkefni sem hefur haft áhrif á réttindi fatlaðs fólks og sýnt samfélaginu að fatlað fólk séu virkir þátttakendur í samfélaginu.
  • Sá sem er valinn fær viðurkenningu sem heitir Múrbrjóturinn.
  • Þekkir þú einhvern sem hefur bætt stöðu fatlaðs fólks eða gefið fötluðu fólki tækifæri til að lifa eðlilegu lífi eins og aðrir í samfélaginu?
  • Þá getur þú sent okkur skilaboð á throskahjalp@throskahjalp.is í síðasta lagi 13. nóvember.
  • Stjórn Þroskahjálpar velur verðlaunahafann og fær sá sem valinn er verðlaun á alþjóðadegi fatlaðs fólks.
Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt