AUÐLESIÐ
- Þroskahjálp velur á hverju ári manneskju, félag eða verkefni sem hefur haft áhrif á réttindi fatlaðs fólks og sýnt samfélaginu að fatlað fólk séu virkir þátttakendur í samfélaginu.
- Sá sem er valinn fær viðurkenningu sem heitir Múrbrjóturinn.
- Þekkir þú einhvern sem hefur bætt stöðu fatlaðs fólks eða gefið fötluðu fólki tækifæri til að lifa eðlilegu lífi eins og aðrir í samfélaginu?
- Þá getur þú sent okkur skilaboð á throskahjalp@throskahjalp.is í síðasta lagi fimmtudaginn 10. nóvember.
- Stjórn Þroskahjálpar velur verðlaunahafannog fær sá sem valinn er verðlaun á alþjóðadegi fatlaðs fólks.
Þroskahjálp óskar eftir tilnefningum fyrir Múrbjótinn fyrir árið 2022. Á hverju ári veita Landssamtökin Þroskahjálp viðurkenningu sína, Múrbrjótinn, í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks 3. desember.
Múrbrjóturinn dregur nafn sitt af því að viðurkenningin er veitt þeim sem að mati samtakanna brjóta niður múra í réttindamálum og viðhorfum til fatlaðs fólks og stuðla þannig að því að það fái tækifæri til að vera fullgildir þátttakendur í samfélaginu og til að lifa eðlilegu lífi til jafns við aðra.
Nú leitum við að tilnefningum ykkar fyrir þau sem hafa verið framúrskarandi á árinu þegar kemur að því að brjóta niður múra. Þú getur sent okkur tölvupóst með nafni viðkomandi og ástæðu tilnefningarinnar. Múrbrjóturinn er veittur til einstaklinga, fyrirtækja, verkefna og stofnana.
Hægt er að skila inn ábendingum og tilnefningum til Múrbrjótsins á netfangið throskahjalp@throskahjalp.is - tekið verður á móti tilnefningum fram til 8. nóvember.
Stjórn samtakanna velur svo verðlaunahafann og er Múrbrjóturinn svo afhentur í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks þann 3. desember.
HÉR má sjá lista yfir fyrri verðlaunahafa.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
