Þroskahjálp merki
EN

Óskað eftir tilnefningum til Múrbrjótsins!

Á hverju ári veita Landssamtökin Þroskahjálp viðurkenningu sína, Múrbrjótinn, í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks 3. desember.

Birt þann:

27.10.2020

Óskað eftir tilnefningum til Múrbrjótsins!

*AUÐLESIÐ NEÐST*

Á hverju ári veita Landssamtökin Þroskahjálp viðurkenningu sína, Múrbrjótinn, í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks 3. desember.

Múrbrjóturinn dregur nafn sitt af því að viðurkenningin er veitt þeim sem að mati samtakanna brjóta niður múra í réttindamálum og viðhorfum til fatlaðs fólks og stuðla þannig að því að það fái tækifæri til að vera fullgildir þátttakendur í samfélaginu og til að lifa eðlilegu lífi til jafns við aðra.

Nú leitum við að tilnefningum ykkar fyrir þau sem hafa verið framúrskarandi á árinu þegar kemur að því að brjóta niður múra. Þú getur sent okkur tölvupóst með nafni viðkomandi og rökstuðning. Múrbrjóturinn er veittur til einstaklinga, fyrirtækja, verkefna og stofnana.

Ábendingar og tillögur skulu sendar á throskahjalp@throskahjalp.is eigi síðar en 15. nóvember.

Stjórn samtakanna velur verðlaunahafann og fær hann Múrbrjótinn afhentan í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks þann 3. desember.

HÉR má sjá lista yfir fyrri verðlaunahafa.

AUÐLESIÐ

  • Þroskahjálp velur á hverju ári manneskju, félag eða verkefni sem hefur haft áhrif á réttindi fatlaðs fólks og sýnt samfélaginu að fatlað fólk séu virkir þátttakendur í samfélaginu.
  • Sá sem er valinn fær viðurkenningu sem heitir Múrbrjóturinn.
  • Þekkir þú einhvern sem hefur bætt stöðu fatlaðs fólks eða gefið fötluðu fólki tækifæri til að lifa eðlilegu lífi eins og aðrir í samfélaginu?
  • Þá getur þú sent okkur skilaboð á throskahjalp@throskahjalp.is í síðasta lagi 15. nóvember.
  • Stjórn Þroskahjálpar velur verðlaunahafann og fær sá sem valinn er verðlaun á alþjóðadegi fatlaðs fólks.
Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt