Hér getur þú sótt um sumarleigu á Daðahúsi,
orlofshúsi Þroskahjálpar á Flúðum
Umsóknir þurfa að berast fyrir 31. mars 2025.
Fatlað fólk og aðstandendur þeirra njóta forgangs.
Leigutímabil og verð
Sumarleigutímabilið er frá 16. maí til 3. október 2025
Daðahús er leigt í viku í senn, frá föstudegi til föstudags
Komutími: kl. 15.00 á föstudegi
Brottför: kl. 12.00 á föstudegi
Verð fyrir viku: 45.000 kr.
Um úthlutun á Daðahúsi
Mikil ásókn er í Daðahús, og við hjá Þroskahjálp erum þakklát fyrir fjölda umsókna.
Markmið Þroskahjálpar er að bjóða sem fjölbreyttustum hópi fólks að njóta orlofshússins.
Við úthlutun skoðar Þroskahjálp því hvaða einstaklingar hafa áður fengið úthlutun á undanförnum árum.
Svar við umsóknum
Umsækjendur um sumarúthlutun 2023 eiga von á svari eigi síðar en 16. apríl.
Gott að vita
Daðahús er heilsárshús og því tilvalið að sækja um leigu að vetri til.
Leiga utan háannatímans er öllum opin, bæði helgar og vikur.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
