Þroskahjálp merki
EN

Valfrjálsa bókunin fullgild

Ísland hefur fullgilt valfrjálsa bókun við Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Birt þann:

09.06.2026

Valfrjálsa bókunin fullgild

Í dag er merkisdagur en Ísland hefur nú loks fullgilt svokallaða „valfrjálsa bókun“ við Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þetta er mikilvægt skref sem Þroskahjálp hefur lengi kallað eftir.

Í stuttu máli felur bókunin í sér að fatlað fólk og samtök þess geta, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, leitað til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks telji þau að íslensk stjórnvöld hafi brotið á réttindum þeirra samkvæmt samningnum. Bókunin styrkir þannig réttindavernd og eykur ábyrgð stjórnvalda á að standa við skuldbindingar sínar.

„Við erum náttúrlega alsæl með þetta. Þetta er eitthvað sem við höfum talað fyrir og barist fyrir í gegnum tíðina,“ segir Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.

Í dag er því full ástæða til að fagna.

Frétt stjórnarráðsins

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt