Þroskahjálp merki
EN

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Birt þann:

17.10.2026

Almanakssalan 2027 hafin!

Sala á listaverkaalmanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Hraustur flokkur sölufólks okkar fer vítt og breitt um landið og býður almanakið til sölu.

Almanakssalan er ein mikilvægasta fjáröflun Þroskahjálpar á ári hverju og við biðjum ykkur að taka vel á móti sölumönnum okkar.

Þú getur einnig keypt almanakið í vefverslun okkar og völdum bókaverslunum.

Kaupa almanakið í vefverslun

listaverkaalmanak þroskahjálpar 2027, forsíða, listaverk eftir Inga Hrafn Stefánsson


Í almanaki ársins 2027 kynnum við listaverk eftir Inga Hrafn Stefánsson.

Hallgrímskirkja kemur reglulega fyrir í verkum Inga Hrafns. Hann heimsækir staðinn, ljósmyndar bygginguna og vinnur síðan áfram með form hennar og ásýnd í málverkum sínum. Þannig verður sama kennileitið að ólíkum myndheimum eftir birtu, árstíma og litavali.

Verk Inga Hrafns hafa verið sýnd bæði hér á landi og erlendis. Árið 2026 átti hann meðal annars tvö verk á sýningunni „Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd“ á Kjarvalsstöðum.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Kílómetragjald á umönnun

Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.

Lesa
Fréttir

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Lesa
Fréttir

Aðgengi á Menningarnótt 2026

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

Lesa