Ný stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðnar um framkvæmd farsældarlaganna vekur verulegar en því miður ekki óvæntar áhyggjur. Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir góðan ásetning er enn langt í land með að tryggja börnum þann stuðning og þá þjónustu sem þau eiga rétt á , ekki síst börnum sem þurfa mikinn stuðning.
Niðurstöðurnar staðfesta það sem Þroskahjálp hefur ítrekað bent á, að stuðningur og þjónusta við fötluð börn eru ekki í forgangi.
Við hjá Þroskahjálp höfum um árabil bent á að kerfin sem eiga að styðja við fötluð börn og fjölskyldur þeirra virka ekki sem skyldi og lýst yfir áhyggjum af úrræðaleysi og bið eftir þjónustu. Engu að síður erum við slegin yfir því hversu dökk mynd skýrslan dregur upp af stöðunni. Þar birtast alvarlegir annmarkar sem hafa afgerandi áhrif á líf barna og fjölskyldur þeirra.
Hér er um að ræða börn sem eiga rétt á því að fá stuðning við hæfi, á réttum tíma og án þess að fjölskyldur þeirra þurfi að berjast fyrir hverju einasta úrræði.
Við verðum við að gera þá kröfu að stjórnvöld og þjónustukerfin bregðist hratt og örugglega við þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni. Börn eiga ekki að sitja uppi með afleiðingar þess að kerfin sem eiga að veita þeim stuðning virki ekki.
Við hvetjum öll til að kynna sér skýrsluna og taka þátt í þeirri mikilvægu umræðu sem hún kallar á.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
