Skrifstofa Landssamtakanna Þroskahjálpar verður lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá og með 1. júlí til og með 4. ágúst.
Eftir sumarleyfi opnar skrifstofan í nýju húsnæði að Suðurlandsbraut 18, 3. hæð.
Okkur líst mjög vel á okkur þar og hlökkum til að taka á móti fólki á þessum nýja stað í ágúst, þegar húsnæðið verður tilbúið.
Í júlí verður lokað fyrir símann okkar, en alltaf má senda okkur tölvupóst á throskahjalp@throskahjalp.is eða senda okkur skilaboð á samfélagsmiðlum samtakanna, þó það gæti tekið lengri tíma að svara en venjulega.
Við óskum fötluðu fólki, aðstandendum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegs sumars, og hlökkum til 50 ára afmælis Þroskahjálpar í haust. Baráttan fyrir réttindum og hagsmunum fatlaðs fólks heldur áfram á komandi hausti!
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
