Hjálplegur leiðarvísir að allri þjónustu
Öll börn eiga mannréttindi.
Til að tryggja að fötluð börn njóti sömu réttinda og þjónustu og önnur börn þarf að auðvelda aðgengi að upplýsingum, þjónustu og stuðningi.
Þess vegna bjó Þroskahjálp til upplýsingatorg á Island.is með ítarlegum upplýsingum um greiningu, réttindi og þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.

Í hverju felst þetta verkefni?
Að auðvelda og auka aðgengi að
nauðsynlegum upplýsingum um stöðu fatlaðra barna
Að hafa allar mikilvægar upplýsingar aðgengilegar á einum stað mun auðvelda foreldrum og forráðamönnum að nálgast þann stuðning og þjónustu sem er forsenda þess að fötluð börn þeirra njóti í reynd þeirra mannréttinda sem þeim eru tryggð í mannréttindasamningum og íslenskum lögum.
Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja að fötluð börn fái notið allra mannréttinda og grundvallarfrelsis til fulls og jafns við önnur börn
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 7. gr.

