Kosningar skipta máli fyrir okkur öll — líka fatlað fólk
Allt fólk hefur sama rétt til að taka þátt í lýðræðinu og hafa áhrif á samfélagið — líka fatlað fólk.
„Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki stjórnmálaleg réttindi og tækifæri til þess að njóta þeirra til jafns við aðra.“
samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 29. gr.
Kosningar skipta máli fyrir líf fatlaðs fólks. Sveitarfélög bera meðal annars ábyrgð á þjónustu, stuðningi, húsnæði, menntun og aðgengi. Því er mikilvægt að fólk geti kynnt sér hvort framboð ætli að standa vörð um mannréttindi fatlaðs fólks og hrinda þeim í framkvæmd.
Þess vegna bjó Þroskahjálp til Flokkahjálp. Þar er að finna stefnuskrá um mikilvægustu málefnin sem varða fatlað fólk og ábyrgð sveitarfélaga. Stjórnmálaflokkar eru hvattir til að taka stefnuskrána upp, kynna hana sem sína og vinna eftir henni.
Flokkahjálp býður einnig upp á greiningartól sem hægt er að nota til að skoða og bera saman stefnuskrár stjórnmálaflokka. Tólið greinir hversu vel þær taka mið af réttindum fatlaðs fólks, samningi Sameinuðu þjóðanna og gildum Þroskahjálpar.
Markmiðið er að auðvelda kjósendum, fötluðu fólki og fjölskyldum þess að kynna sér framboðin og taka upplýsta ákvörðun. Um leið hjálpar verkefnið stjórnmálafólki að móta stefnu sem styður raunverulegt jafnrétti, sjálfræði og þátttöku fatlaðs fólks.
Réttindi fatlaðs fólks eru ekki flokkamál heldur mannréttindamál.
Sjá: flokkahjalp.is