Þroskahjálp merki
EN
Fjáröflun

Listaverkaalmanak Þroskahjálpar

Fyrsta almanak Þroskahjálpar kom út árið 1980 og fyrsta listaverkaalmanakið árið 1985. Öll þessi ár hefur almanakið verið ein helsta og mikilvægasta fjáröflun samtakanna.

Síðan 2023 hafa eingöngu prýtt almanakið listaverk eftir fatlað listafólk. Markmið okkar er að sýna fram á að listsköpun fatlaðs fólks eigi erindi inn á heimili fólks, inn á gallerí og í listabækur.

Tvö almanök hlið við hlið. Til vinstri almanakshappdrætti Þroskahjálpar 1985 með svarthvítri grafíkmynd af skógi eftir Jón Reykdal. Til hægri listaverkaalmanakið 2027 með litríku verki eftir Inga Hrafn Stefánsson.
Fyrsta listaverkaalmanakið og það nýjasta1985 og 2027

Nýkomið úr prentun

Almanakið 2027 er komið

  • Þú styður mannréttindabaráttu fatlaðs fólks
  • Þú færð almanak með verkum fatlaðs listafólks
  • Þú gætir unnið listaverk í happdrættinu
Kaupa almanakið

5.000 kr. · sending innifalin

Almanak Þroskahjálpar 2027. Á forsíðunni er verk eftir Inga Hrafn Stefánsson.

Allt í senn arkíf og listabók

Samtökin reiða sig að miklu leyti á frjáls framlög og er árleg sala almanaksins ein af stærstu fjáröflunum Þroskahjálpar. Frá upphafi hefur almanakinu einnig fylgt happdrætti.

Við höfum prófað ýmsar aðferðir við söluna, þróað útlitið, og undanfarin ár lagt sífellt meiri áherslu á að almanakið, eins og starf okkar, virki sem lyftistöng og flóðljós á listsköpun fatlaðs fólks.

Almanakið er þannig allt í senn arkíf, sýningarskrá, dreifirit og listabók, en fyrst og fremst er almanakið fjáröflunarleið fyrir samtökin.

Útsaumsverk: litríkir ferningar hver innan í öðrum, í grænum, bláum, rauðum, gulum og brúnum litum.
Guðrún BergsdóttirÁn titils (2021)Verk Guðrúnar prýddu almanakið 2025.
Yfirlit yfir almanakið 2023: eitt verk fyrir hvern mánuð, eftir Láru Lilju Gunnarsdóttur, Ísak Óla Sævarsson, Þóri Gunnarsson Listapúka, Guðrúnu Bergsdóttur, Sigtrygg Einar Sævarsson, Einar Baldursson, Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur, Kristján Ellert Arason, Atla Má Indriðason, Helgu Dómhildi Alfreðsdóttur, Steinar Svan Birgisson og Guðjón Gísla Kristinsson.
Listafólk almanaksins 2023

Af hverju eingöngu fatlað listafólk?

Með almanakinu 2023 skerptum við áherslur samtakanna: almanakið skyldi eingöngu prýða listaverk eftir fatlað listafólk.

Innan jaðarlistheimsins hefur fatlað listafólk skapað kraftmikla og fjölbreytta list, en sýnileikinn er í takt við fábreytt tækifæri til þátttöku og listmenntunar.

Fyrsta almanakið með þessari nýju áherslu sýndi verk tólf fatlaðra listamanna. Síðan þá hefur almanakið verið sterkari vettvangur fyrir listsköpun fatlaðs fólks, og verkin hanga á veggjum heimila um allt land.

Reglurnar virðast aðrar

En því miður er fatlað fólk enn gjarnan barngert og hæfileikar þeirra afskrifaðir. Þegar verk eftir fatlað listafólk er naívískt, formin mínimalísk eða myndflöturinn barnslegur, er hætt við að fólk sjái barnaskap þar sem það sæi stíl hjá öðru listafólki.

Jafnvel þó samtímalistafólki, ófötluðu, sé nokkuð frjálst að vinna með það listform sem þeim sýnist, nota allar þær aðferðir og myndefni sem hugurinn girnist, þá virðast reglurnar aðrar fyrir fatlað listafólk.

Við heyrum reglulega að Picasso hafi valið að teikna afbyggðu formin (hann kunni alveg að teikna og mála „alvöru“). Sama með Matisse. Sama með Erró. Snilld þeirra byggist meðal annars á hugmyndaríku vali á formi og útfærslu, og því að þora að birtast jafn hrátt. Þeir vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera.

Fatlað listafólk veit það líka.

Málverk á grænum grunni: maður með yfirvaraskegg og hatt, í dökkum jakka með bindi, og rauð blóm við hlið hans.
Listapúki / Þórir GunnarssonHaukur Morthens (2025)
En hvernig eigum við að vita hvað fatlað listafólk velur, hvað þau þora, hvað þau vita sem við vitum ekki, ef við eigum aldrei samtalið við þau?

Úr almanaki Þroskahjálpar 2025

Listafólk almanaksins

  • 2023: Listaverk eftir tólf fatlaða listamenn. Í fyrsta sinn eingöngu verk eftir fatlað listafólk.
  • 2024: Í desember 2023 sýndu Brandur, Elfa Björk, Guðjón Gísli og Helga Matthildur verk úr almanakinu í Gallery Port á Laugavegi.
  • 2025: Safn verka eftir Guðrúnu Bergsdóttur.
  • 2026: Verk eftir sjö listamenn sem öll starfa á vettvangi Listvinnzlunnar: Elínu Sigríði Maríu Ólafsdóttur, sem á forsíðuverkið, Helgu Matthildi Viðarsdóttur, Gígju Garðarsdóttur, Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur, Þóri Gunnarsson Listapúka, Kolbein Jón Magnússon og Atla Má Indriðason. Listvinnzlan hlaut Múrbrjótinn, hvatningarverðlaun Þroskahjálpar, árið 2023.
  • 2027: Verk eftir Inga Hrafn Stefánsson. Hallgrímskirkja kemur reglulega fyrir í verkum hans. Hann heimsækir staðinn, ljósmyndar bygginguna og vinnur síðan áfram með form hennar og ásýnd í málverkum sínum.

Forsíður í gegnum árin

Nokkrar forsíður úr safninu, frá almanakinu 2027 og aftur til þess fyrsta, árið 1980.

  • Forsíða almanaksins 2027: Hallgrímskirkja í mörgum litum.

    2027

    Ingi Hrafn Stefánsson

  • Forsíða almanaksins 2026: kona í hvítum kjól í litríku landslagi.

    2026

    Elín Sigríður María Ólafsdóttir

  • Forsíða almanaksins 2025: útsaumur í litríkum ferningum.

    2025

    Guðrún Bergsdóttir

  • Forsíða almanaksins 2023: útsaumsverkið Foss í Vaðlaheiði, landslag með fossi.

    2023

    Guðjón Gísli Kristinsson

  • Forsíða almanaksins 2022.

    2022

    Kristín Gunnlaugsdóttir

  • Forsíða almanaksins 2021.

    2021

    Loji Höskuldsson

  • Forsíða almanaksins 2020.

    2020

    Tolli

  • Forsíða almanaksins 2019.

    2019

    Auður Ólafsdóttir

  • Forsíða almanaksins 2018.

    2018

    Brian Pilkington

  • Forsíða almanaksins 2015.

    2015

    Gunnella

  • Forsíða almanaksins 2014.

    2014

    Sigurjón Jóhannsson

  • Forsíða almanaksins 2013.

    2013

    Guðrún Bergsdóttir

  • Forsíða almanaksins 2008.

    2008

    Magdalena Margrét Kjartansdóttir

  • Forsíða almanaksins 2004.

    2004

    Sveinbjörg Hallgrímsdóttir

  • Forsíða almanaksins 1999.

    1999

    Þórdís Elín Jóelsdóttir

  • Forsíða almanaksins 1992.

    1992

    Erró

  • Forsíða almanaksins 1987.

    1987

    Þórður Hall

  • Forsíða fyrsta listaverkaalmanaksins, 1985.

    1985

    Jón Reykdal – Í skógarsal

  • Forsíða almanaksins 1983, mynd úr DV 11. desember 1982.

    1983

  • Forsíða fyrsta almanaksins, 1980, mynd úr Vísi 4. desember 1979.

    1980

Teikning með lituðum pennum: þéttar línur í fjólubláu, rauðu, bláu og grænu mynda hillur fullar af hlutum.
Helga Matthildur ViðarsdóttirMaría (2025)

Handpakkað í Ási vinnustofu

Almanaki Þroskahjálpar er handpakkað í Ási vinnustofu.

Í Ási er vinnuaðstaða sniðin að þörfum og getu fatlaðs fólks með skerta starfsgetu. Áhersla er lögð á að efla sjálfsöryggi einstaklingsins og starfshæfni með það að markmiði að starfa á almennum vinnumarkaði.

Enginn getur allt, en allir geta eitthvað.

Kjörorð Áss styrktarfélags

Almanakshappdrættið

Almanakinu fylgir happdrættismiði og dregið er í janúar. Í janúar 2026 var dregið úr 15.000 miðum.

Á meðal vinninga eru gjafabréf á upplifanir, hótelgisting, auk fjölda listaverka, bæði frummyndir og eftirprentanir, eftir marga ástsælustu listamenn þjóðarinnar, þar á meðal þá frábæru listamenn sem eiga verk í almanaki ársins.

Almanak Þroskahjálpar 2027

Takk!

Með kaupunum styður þú beint við baráttu Þroskahjálpar fyrir réttindum fatlaðs fólks.

Fæst hjá sölufólki okkar um allt land, í vefversluninni og völdum bókaverslunum.

5.000 kr. · sending innifalin

Almanak Þroskahjálpar 2027. Á forsíðunni er verk eftir Inga Hrafn Stefánsson.