Þroskahjálp merki
EN
Umsagnir og álit

Yfirlýsing vegna skorts á aðgengi við veitingu Múrbrjótsins

Birt þann:

04.12.2023

Yfirlýsing vegna skorts á aðgengi við veitingu Múrbrjótsins

Sameiginleg yfirlýsing Listar án landamæra, Þroskahjálpar og Þjóðleikhússins

Á alþjóðadegi fatlaðs fólks var haldinn glæsilegur lokaviðburður Listar án landamæra í Þjóðleikhúsinu þar sem Landssamtökin Þroskahjálp veittu Múrbrjótsviðurkenningu samtakanna, eins og samtökin hafa gert síðustu 30 ár. Þar stigu á svið tugir listamanna og heilluðu áhorfendur. Í lok athafnar afhenti Þroskahjálp þremur aðilum Múrbrjótinn fyrir baráttu sína fyrir réttindamálum fatlaðs fólks. List án landamæra, Þroskahjálp og Þjóðleikhúsinu þykir afar leitt að aðgengi hjólastóls eins verðlaunahafans úr salnum var ekki ásættanlegt og ekki höfðu verið gerðar ráðstafanir til að hann myndi nýta aðra greiðari leið að sviðinu. Á því biðjast aðstandendur innilega afsökunar enda hafa allir mikinn metnað fyrir góðu aðgengi.

Nú þegar hefur verið haft samband við verðlaunahafann og hann beðinn afsökunar á atvikinu.

Að öðru leyti var hugað að aðgengi listafólks og gesta eftir fremsta megni. Aðgengi

gesta að Þjóðleikhúsinu hefur verið stórbætt á síðustu árum með nýju lyftuhúsi og rampi við leikhúsið og Framkvæmdasýsla ríkisins undirbýr brýnar úrbætur á aðgengi að öðrum sviðum leikhússins.

Við tökum það mjög alvarlega að þetta hafi gerst á viðburði sem á að vera til fyrirmyndar í aðgengismálum. Þetta var ekki til fyrirmyndar og biðjumst við afsökunar á okkar hlut í þessu máli. Við viljum og ætlum að gera betur.

Jóhanna Ásgeirsdóttir, listrænn stjórnandi Listar án landamæra

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri

Tengdar greinar

Umsagnir og álit

Yfirlýsing vegna geðendurhæfingar ungs fólks

Landssamtökin Þroskahjálp hafa ásamt Geðhjálp, Einhverfusamtökunum, Píeta samtökunum og Geðlæknafélagi Íslands sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirvofandi lokunar á geðendurhæfingarúrræðinu Janusi. Við skorum á ríkisstjórnina að endurskoða þessa ákvörðun og tryggja lífsbjargandi þjónustu fyrir viðkvæman hóp.

Lesa
Umsagnir og álit

Áskorun til nýkjörinna alþingismanna

Áskorun Þroskahjálpar varðandi réttinda- og hagsmunamál fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, send formönnum flokka sem fengu fulltrúa kjörna á Alþingi í nýliðnum kosningum.

Lesa
Umsagnir og álit

Ályktanir fulltrúafundar Þroskahjálpar 2024

Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar var haldinn laugardaginn 19. október síðastliðinn.á Grand Hótel Reykjavík. Hér birtast þær ályktanir sem voru samþykktar á fundinum. Ályktanirnar eru einnig á auðlesnu máli.

Lesa