Lands-samtökin Þroska-hjálp hafa fengið styrk hjá Reykjavíkur-borg til að búa til ráðgjafar-hóp til að ráð-leggja þeim sem sjá um þjónustu fyrir fólk með þroska-hömlun í Reykjavík. Það er fólk með þroska-hömlun sem verður ráð-gjafar.
Lands-samtökin Þroska-hjálp hafa fengið styrk hjá Reykjavíkur-borg til að búa til ráðgjafar-hóp til að ráð-leggja þeim sem sjá um þjónustu fyrir fólk með þroska-hömlun í Reykjavík.
Það er fólk með þroska-hömlun sem verður ráð-gjafar.
Fjölmennt mun halda námskeið fyrir ráð-gjafa.
Ráð-gjafarnir munu fá fræðslu um lög og réttindi fatlaðs fólks. Þeir munu líka fá þjálfun og undir-búning fyrir það að segja skoðun sína á þjónustunni.
Námskeiðið hefst í byrjun mars og verður haldið seinni partinn á daginn eða á laugardögum. Alls 9 vikur.
Það kostar ekkert að fara á námskeiðið.
Þeir sem sækja um að verða ráðgjafar þurfa að búa í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 20.febrúar.
Til að sækja um þá þarf að ýta á hnappinn Reykjavík, velja hnappinnSjálfstyrking/valdefling og þar undir er námskeið sem heitir Ráðgjafa-hópur.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
