Þroskahjálp merki
EN

Viðurkenning fyrir lokaverkefni í þroskaþjálfafræðum

Landsamtökin Þroskahjálp ákváðu árið 2014 veita viðurkenningu fyrir lokaverkefni til B.A. – gráðu í þroskaþjálfafræðum við íþrótta-, tómstunda- og Þroskaþjálfadeild. Háskóla Íslands. Markmiðið var að vekja athygli á verkefnum sem væru framúrskarandi og til þess fallin að vekja athygli og stuðla að nýsköpun

Birt þann:

27.06.2016

Viðurkenning fyrir lokaverkefni í þroskaþjálfafræðum

Landsamtökin Þroskahjálp ákváðu árið 2014 veita viðurkenningu fyrir lokaverkefni til B.A. – gráðu í þroskaþjálfafræðum við íþrótta-, tómstunda- og Þroskaþjálfadeild. Háskóla Íslands. Markmiðið var að vekja athygli á verkefnum sem væru framúrskarandi og til þess fallin að vekja athygli og stuðla að nýsköpun

Landsamtökin Þroskahjálp ákváðu árið 2014 veita viðurkenningu fyrir lokaverkefni til B.A. – gráðu í þroskaþjálfafræðum við íþrótta-, tómstunda- og Þroskaþjálfadeild Háskóla Íslands. Markmiðið var að vekja athygli á verkefnum sem væru framúrskarandi og til þess fallin að vekja athygli og stuðla að nýsköpun.

Samtökin hafa síðan veitt slík verðlaun. Fyrirkomulag við að að velja verkefni sem hlýtur verðlaunin er þannig að leiðbeinendur lokaverkefna tilnefna verkefni til verðlaunanna. Dómnefnd sem skipuð er fulltrúum Landssamtakanna Þroskahjálpar, Átaks félags fólks með þroskahömlun og Þroskaþjálfafélags Íslands auk umsjónarmanna lokaverkefna við þroskaþjálfabraut velur síðan verðlaunahafa úr verkefnum sem hafa verið tilnefnd.

Nú í ár hlaut Trausti Jónsson verðlaunin fyrir verkefni sitt „Hvernig samræmist þjónandi leiðsögn félagslegum skilningi fötlunarfræðinnar“

Í umsögn leiðbeinanda um verkefnið segir:

„Um er að ræða fræðilega ritgerð þar sem höfundur fjallar um hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, ber saman við félagslegan skilning fötlunarfræðinnar og fjallar á greinandi hátt um hvað er sameiginlegt og hvað skilur á milli. Höfundur hefur lagt sig fram um heimildaöflun og notar fjölbreyttar heimildir. Nýsköpunargildi verkefnisins felst í því að skoða hagnýtar aðferðir í ljósi hugmynda og kenninga. Þar af leiðir að verkefni eins og þetta er mikilvægt og gagnrýnið innlegg í umræður um leiðir í starfi með fötluð fólki.“

Landssamtökin Þroskahjálp óska Trausta til hamingju með verðlaunin en hann mun síðar gera gein fyrir verkefni sínu í tímariti Þroskahjálpar.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt